Morgunn


Morgunn - 01.06.1957, Page 87

Morgunn - 01.06.1957, Page 87
MORGUNN 81 dóm sem líkt því eins hættulega andstæðinga sem kristnu kirkjurnar í Kína. Við þessar staðhæfingar er samstundis skylt að bæta við því, að að hinu leytinu hefir allur þorri kristinna manna mikið af ýmsum öðrum trúarbrögðum að læra. Framar öllu öðru á þetta við um þá kenning, að alls stað- ar hafi Guð veitt mönnum opinberun um sig. Sú kenn- ing hefir fætt af sér það mikla umburðarlyndi gagnvart öðrum trúarbrögðum, sem hvað ljósast vei-ður fyrir oss í búddhadómi, hindúisma og súfisma. Naumast mun til feg- urri líkingarmynd af alls staðar starfandi opinberun Guðs í heiminum, á öllum stöðum, á öllum öldum, en þessi lík- ingarmynd mahayanabúddistanna: „Eins og glitrandi skin mánans endurspeglast á öllum vötnum, óhreinum regn- pollum, kristallstærum fjallavötnum og hinu endalausa úthafi, þannig hefir „hjarta hinnar miklu miskunnsemi“ opinberað sig í öllum trúarbrögðum, hinum lægstu og hin- um æðstu“. Og er nokkurs staðar til háleitara dæmi trú- arlegs umburðarlyndis en í svonefndri fjallatilskipan Ashoka konungs, hins merkilega og máttuga stuðnings- manns búddhadóms á Indlandi, en þar segir: Sá, sem vegsamar önnur trúarbrögð, styður trúarbrögð sín, en sá, sem óvirðir annarra manna trú til þess að upphefja sína trú, hann óvirðir sinn eigin átrúnað? Aðrir yfirburðir búddhadóms og hindúisma fram yfir kristindóminn eru þeir, að hafa stöðugt getað tekið við og samlagað trúarkenningum sínum nýjar og nýjar heims- myndunarkenningar, svo að nú eru þessi austrænu trúar- brögð í miklu meira samræmi við nútíma heimsmyndunar- skoðanir og vísindalegar niðurstöður stjarnfræðinnar en heimsmynd Biblíunnar, sem gerir þessa litlu jörð vora með hennar stutta æviskeiði að miðpúnkti allrar tilver- unnar. Þriðju yfirburðir hinna austrænu trúarbragða eru þeir, að þar er friðun dýranna og kærleikurinn til þeirra skyldu- boð til allra manna, en ekki aðeins sérkenni fárra heilagra 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.