Morgunn - 01.12.1966, Side 13
MORGUNN
91
Ekki er hægt að segja, að mjög margt nýtt hafi komið
fram við þessar rannsóknir, enn sem komið er. Eigi að síður
hafa þær reynzt mjög þýðingarmiklar, og má mikils af þeim
vænta í framtíðinni. Þegar hefur tekizt að sanna með vís-
indalegum tilraunum, sem ekki er unnt að rengja, bæði f jar-
hrif og f jarskyggni. En um þessi fyrirbæri höfðu Sálarrann-
sóknafélögin áður safnað sæg af skýrslum og vottfestum
frásögnum þeirra, sem fyrir slíkri reynslu höfðu orðið. Slík-
ar frásagnir einstaklinga má lengi véfengja, enda hefur það
óspart verið gert. — Brautryðjendum sálarrannsóknanna,
bæði hérlendis og erlendis, hefur verið borið það þráfald-
lega á brýn, að rannsóknir þeirra væru kák og niðurstaða
þeirra hugarburður einn. Miðlar hefðu orðið uppvísir að
svikum og blekkingum, og að yfirleitt væri ekkert mark á
þessum málum takandi.
Vel má gera þessum mönnum það til geðs að játa það
hreinskilnislega, að blekkingar og mistök hafa átt sér stað
einstöku sinnum í athugunum þessara mála. En svo er einn-
ig um rannsóknir á flestum öðrum sviðum. Hins vegar dett-
ur engum sæmilega viti bornum manni í hug að telja slíkt
út af fyrir sig fela í sér neina sönnun fyrir því, að þessi mál
séu ekkert annað en blekking og hégómi. Slík afstaða er
ekki aðeins fáránleg, órökræn og barnaleg, heldur er þar
beinlínis snúið við öllum meginatriðum vísindalegrar rann-
sóknar og þekkingarleitar. Reynslan hefur marg sýnt og
sannað og er alltaf að gera það, að sannleikurinn flýgur yf-
irleitt ekki upp í menn eins og steikt gæs eða flysjuð lcar-
tafla. Sannleiksleitin er erfið og villugjörn, jafnvel fyrir
hina ágætustu vísindamenn. Þeir komast þar hvorki hjá
mistökum, né heldur hinu, að blekkja sig á margan hátt eða
vera blekktir af öðrum. En vísindamanni dettur ekki í hug
að fieygja frá sér viðfangsefninu af þessum sökum. Hann
veit sem er, að mál verður hvorki sannað né afsannað með
ófullkominni athugun, sjálfsblekking eða svikum annarra.
Þvexi; á móti fyllist hann, vegna þessa, auknum áhuga á því
að finna það rétta og gerir nýjar og nákvæmai’i tilraunir,