Morgunn - 01.12.1966, Síða 61
MORGUNN
139
Síðdegis var farið í feluleik. Enginn mátti skerast úr leik,
jafnvel ekki prestsfrúin. Tvennt átti að leita, hin að hlaupa í
felur. Er merki var gefið, þaut hópurinn eins og kólfum væri
skotið og með hlátrum og sköllum á afvikna staði. Víða var
hægt að felast. Hlaðan var hálffull af heyi. Svo voru útihús,
eins og t. d. smiðja, bakarastofa, hænsnahús, hesthús og f jós,
og að sjálfsögðu íbúðarhúsið, með öllum sínum rangölum og
skotum. Sem sagt, allur skarinn var horfinn, eins og jörðin
hefði gleypt þau, þegar hin tvö tóku að leita. Smátt og smátt
voru feluormarnir dregnir fram úr fylgsnum sínum, að við-
höfðum ópum og ólátum, presturinn með hey í hárinu, frúin
úr kornbingnum; einn stúdentanna hafði skriðið undir hlöðu-
gólfið og varð að toga hann þaðan á fótunum; einn kúrði
undir brunnlokinu og mátti vísa á sig sjálfur . . . Loks voru
allir fundnir, að ætlað var, og skarinn þrammaði inn í eldhús,
þar sem vinnufólkið beið. Gengu nú allir til borðs, að éta
rjómagrautinn.
Þá hófst stúdentinn orða: — Hvar er Anetta?
Já, hvar var Anetta? 1 öllum gauraganginum gættu þau
eigi talsins á leikfólkinu. Líklega kæmi hún þó bráðum. Ein
systranna var send út til að svipast um eftir Anettu og biðja
hana að koma strax. En, nei. Og Anetta var ekki í herberg-
inu sínu. Frúin gerðist óróleg og gekk út. Fólkið hætti þvaðr-
inu og hlátrinum, og einhver fór að hefja getur um hvar
Anetta mundi hafa falið sig. Hvorugt þeirra sem leituðu,
gátu gefið svar við því. Hvorugt hafði fundið hana. Frúin
kom inn: — Ég skil ekki hvað orðið hefur af barninu, sagði
hún, — við verðum að fara og leita, kalla á hana, ef til vill
hefur hún meitt sig og getur ekki komið sjálf ...
— Hún finnst. Ég skal finna hana, sagði stúdentinn og
stökk á dyr. Brosandi andlit fylgdu honum til leiðar — þessi
góðu, skilningsríku hugartákn, sem umkringja unga elsk-
endur ...
Þau leituðu og kölluðu, en engin Anetta fannst. Glaðværð
dagsins breyttist í óttablandna alvöru. Prestsfrúin grét og
hana gat enginn huggað. Hér hlaut að hafa orðið harma-