Morgunn - 01.06.1975, Side 15
PRESTASAMÞYKKT MOTMÆI.T
13
mér hafa fundizt áhugasamir um kristindóm langt umfram
það sem gengur og gerizt, og yfirleitt hafa mér fundizt spíri-
tistar betur kristnir en gengur og gerist. Meðal þeirra er
a. m. k. einn maðirr, sem mér hefur fundizt einhver bezt
kristni maður sem ég hef kynnzt á ævinni. Og mér er kunn-
ugt um að menn, sem enga trú höfðu á kristindómi, hafa
orðið kristnir með spíritisma sem millistöð.
1 samþykktinni er lýst yfir hollustu við Jesú Krist „eins og
lionum er borið vitni í Nýja testamentinu“ og „brýnt fyrir
öllum að láta ekki bifast á þeim grundvelli“. Sjá menn, sem
þessu eru samþykkir og hafa jafnframt talið nauðsynlegt að
vara kristna menn við spíritismanum, enga bendingu í mn-
mælum Jesú um „illgresi meðal hveitisins"? „Þjónarnir sögðu
við hann (eiganda akursins): „Viltu þá að við förum og tín-
um það?“ En hann segir: „Nei, svo að þér eigi, er þér tínið
illgresið, reytið hveitið upp ásamt því.“ (Matt. 13). Eða þá
þessi frásögn í Markúsarguðspjalli, 9. kapítula: „Jóhannes
sagði við hann (Jesú): „Meistari! Vér sáum mann einn, sem
í þínu nafni rak út illa anda, og vér bönnuðum honum það,
af því að hann fylgdi oss ekki.“ En Jesús sagði: „Bannið hon-
um það ekki, því að enginn er sá er gerir kraftaverk í minu
nafni og rétt á eftir getur talað illa um mig. Því áS sá sem
ekki er á móti oss, hann er méS oss.“ Felst engin viðvörun við
athöfnum sem ofangreindri samþykkt gegn „dulartrúarfyrir-
brigðum“ í frásögn þessari?
% er hvorki að biðja presta landsins né aðra kristna menn
þess að gera gustuk á spíritistum. Ég er að vara þá við að
vinna sjálfum sér til sektar. „Maður líttu þér nær!“ Líkist
kannski þjóðkirkja Islands ekkert saltinu dofnaða? Hvar eru
líærleiks-tilþrifin? Jú, aðeins örlar á þeim, og Guði sé lof fyrir
það, þó að lítið sé! En er ekki íslenzkur almenningur líkast-
ur hjörð sem engan hirði hefur? „Ekki mun hver sá, er við
mig segir: „Herra, herra!“ ganga inn í liimnaríki, heldur sá
er gerir vilja Föður míns.“
Ég held yfirlæti gagnvart skoðunum annarra fari ekki vel
á íslenzku prestunum — enda verð ég að játa, að hingað til