Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 27
SPÍRITISMINN, OG ÞAÐ SEM HANN BOÐAR
25
lífsins. Þessi staðreynd útrýmir þegar úr hugum okkar spíri-
tista eða framlífshyggjumanna öllum kennisetningum og
„dogmum“ „orthodox“-trúar með þvi að það er ljóst, að inn-
ganga okkar mannanna til æðra lifs krefst ekki vegabréfs né
neinna kennisetninga jarðneskra trúarbragða.
Þessir vinir okkar framliðnir úr jarðvistinni til æðra til-
vistarsviðs koma aftur til þess að tala við okkur um stundar-
sakir, fræða okkur um það, að þeir lifi hamingjusamlega og
í fullri einingu með þeim, sem á jörðinni aðhylltust önnur
trúarbrögð, hverskonar sem voru, og ekki siður með þeim,
sem töldu sig engu trúa. Þegar við berum fram spurningar
um trúarbrögðin, segja þeir okkur að jarðnesk trúarbrögð
verði þeim ekki hugstæð eftir að yfir um kemur. Æðri þekk-
ing kemur i stað blindrar trúar og villum og ágizkunum er
varpað fyrir borð.1)
Vinir okkar frá æðra tilvistarsviði fræða okkur um það, að
þeim sé nú stórum hægara um að skynja og gera sér grein
fyrir ráðgátum tilverunnar en meðan þeir dvöldust i jarðvist-
inni; þeir séu fæddir og leiddir af þroskaðri verum en þeir
séu sjálfir og að þessir fræðarar hafi fyrrum verið menn á
jörðinni rétt eins og við. En með því að þeir séu nú svo lengi
búnir að dveljast á liærri sviðum séu þeir búnir að öðlast svo
mikla reynzlu og liærri vizku að lijálp þeirra og handleiðsla
til handa okkur, er síðar komum, sé frábærlega mikilsverð.
Hugmyndir okkar hversdagslegra jarðarbúa um tilveruna
eru takmarkaðar af ófullkominni sjón okkar, heyrn og öðrum
takmörkuðum skilningarvitum. í því efni má líkja okkur við
„Caddis“ ormana, sem á fyrstu skeiðum lífs síns eru lirfa og
1) Þetta ber ])ó ekki að skilja svo að allri trúarhugð sé fyrir borð varpað.
En öll trúarbrögð sameinast smámsaman í trú á einn guð allsherjar. Meðal
fegurstu lýsinga að handan eru þær sem greina frá stórkostlegrun trúarhá-
tíðum í fegurstu musterum við háa tónlist, þar sem háþroskaðar verur flytja
mönnunum fræðslu og hefja þá upp til æðri vizku og hærri þroska, enda
þótt þar í heimi eins og hér á jörðu bresti á þekkingu frumuppsprettu
orkunnar og sköpunarverksins: -— sjálfan Guðdómiim. Athugasemd mín.
— J. Þ.