Morgunn


Morgunn - 01.06.1975, Qupperneq 59

Morgunn - 01.06.1975, Qupperneq 59
57 LÍF, HUGUR, SÁL fengið ástæðu til að vakna til umhugsunar um það. Ég vil því reyna að lýsa þrískiptingu mannsins, eins og mér hefir virzt ég finna hana næmast, þótt ég eigi örðugt að koma orðum að því, svo að skiljanlegt verði. En bæði ég og margir aðrír vita dæmi til, að undir sömu atvikum og ástæðum, sem ég var þá, eru lík fyrirbrigði ekki óvanaleg. Sjúkdómsfyrirbrigði höfundar. Það var tímanlega að vorlagi. Yar ég þá um 8árs. Ég hafði veikzt nokkuð skyndilega og lá mjög þungt. Ekkert veit ég eða man, hvaða veiki þetta var. Minnir, að ég lægi um 2 vikur eða vel það. Ég lá í herbergi, sem var í öðrmn enda baðstofunnar. Þar voru 2 rúm fyrir stafni. Fósturforeldrar mínir sváfu í öðru þeirra, en ég var einn í hinu. Þann dag, er veikin komst á hæst stig, mun mér eigi hafa verið hugað lif, einkum þó, er á daginn leið. Ég sá það og heyrði á öllu. Það heyrðist varla nema hljóðskraf í hinni fólksmörgu baðstofu, og ég skildi ekkert i því, hve daufir menn voru og alvarlegir, þótt þeir teldu víst, að ég ætti ekkert eftir, nema hrökkva upp af. Mér virtist eins og það gerði lítið til, á hvem veg það félli. Nær engir komu til mín nema systir mín, sem var lengstum hjá mér. Hún var fóstra mín og móðursystir, og kallaði ég hana systur mína. Börnin, sem ætíð hnöppuðust svo kát í kríngum mig, læddust nú þögul og niðurlút um baðstofuna. Stundum horfðu þau í áttina að rúmi mínu, en þess á milli forðuðust þau að líta þangað. Það var eins og líkhræðslan hefði þegar gripið þau. Mig langaði til að segja þeim að koma til mín og vera óhræddum. En ég megnaði hvorki að tala til þeirra, né gefa þeim bendingu. Þannig leið kvöldið. Allir háttuðu nema fóstra mín. Hún sat við rúmið mitt. Nokkru síðar leggur hún sig i rúm sitt. Vissi hún vel, að hún yrði þess þegar vör, hve lítið, sem á mér ba'rði. Þetta var á þeim tima árs, sem nótt var hálfbjört alllengi frameftir. Ég hafði verið altekinn, og víst þjáðst mik-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.