Morgunn - 01.06.1975, Síða 69
HUGLÆKNINGAR
67
áttina til þess viða. En sennilegt er, að litlu minna gildi hafi
að rannsaka, hvaða verkanir lífgeislar eða orkustreymi frá
manni geti haft á aðra til hreysti eða óhreysti.
Nuddlækningar eru nú mjög farnar að tíðkast, enda er
það eðlilegt, þvi að núningurinn, út af fyrir sig, er læknandi.
En sennilegt virðist, að stundum verki engu síður orkustreym-
ið frá lækninum. Enda er það alþekkt, að nuddlæknar reyn-
ast mjög misjafnt, þótt þeir hafi hinn sama lærdóm og noti
sömu aðferð. Mun þetta að mestu stafa af mismunandi eðli
og styrkleika orkustrauma þeirra.
Þá eru og lækningar með handaálagningu og fyrirbænum.
Munu þær hafa verið taldar til kraftaverka. Ég þekki þær
eigi nema að nafninu lil. En sennilegt virðist, að þar fari
saman huglækning og lífgeislalækning. Bænin styrkir huga
læknisins og festir hann við sjúkdóminn. Hún tengir hann
einnig við huga hins sjúka, en það er mikilsvert. Af tur á móti
stuðlar handaálagningin til þess, að orkustreymið falli meira
á einn stað en annan. Enda ekki ósennilegt, að sterkur og
ákveðinn hugur geti með handahreyfingunni að nokkru ráð-
ið um styrkleik og stefnu lifgeislanna.
Það er langt síðan að lækning með handaálagningu þekkt-
ist, og eru mörg dæmi þeirra. Kemur það berlega fram í Egils
þætti Síðu-Hallssonar, að þeir Egill, Finnur Árnason og Tófi
Valgautsson hafa haft sterka trú á Ólafi konungi helga i þeim
efnum. Einnig að Ólafur hafi í því efni haft trú á sjálfum
sér. Eftir sögunni að dæma hefir lækningin farið fram með
handaálagningu og huglækningu. Konungur leggur höndina
á verkinn og bregður dúki fyrir augu sér. Er auðsætt, að það
hefir hann gert til þess að koma i veg fyrir, að hugurinn
mætti truflun utan að, er dregið gæti úr styrkleika hans.
Hér kemur því hið sama fram, eins og þegar Hákon Hlaðajarl
Sigurðsson vildi seiða fram í huga sinn, hvar Hrappur væri
niðui- kominn, eftir að haim hafði brennt hofið fyrir honum
og Guðbrandi i Dölum. Er þá sagt, að jarl gengi einn frá
öðrum mönnum, félli á knébeð og hélt fyrir augu sér.
Brjálsemi kemur fram í afarmörgum myndum. Ekki ein-