Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 79
HUGI.ÆKNINGAR
77
aS sína guðdómlegu vizku hafi hann að mestu leyti öðlazt
með vitundartali við andlegar verur (sbr. viðtal hans við
Móse og Elía á fjallinu! sjá og Matt. 4,11: ,,og englar komu
og þjónuðu honum.“ Ennfremur Lúk. 22,43: ..Þá birtist hon-
um engill af himni, sem styrkti hann,“ o. fl.). En þegar
Jesús hóf köllun sína, er liann hafinn yfir alla sjoid, búinn
að ná fullu valdi yfir eðli sinu, og takmarklaus kærleiki til
allra manna læsir sig gegnum hverja hans taug. Hann er
og gæddur guðlegum mætti og vizku. Og það er þessi Jesús,
sem menn verða að kynnast, til þess að geta skilið hann og
störf hans.
Vegna þess að Jesús hefir náð sjálfstæðu valdi yfir eðli
sinu hefir vitund hans eða sál náð stjórn yfir samböndum
sinum eða leiðslu til hugans. Hún hefir því getað veitt hug-
anum vitneskju um allt, er hún vildi, og látið hann fram-
kvæma og birta það með orðum eða gjörðum. 1 þessu er
fólgin hin mikla dulspekisgáfa hans, er yfirgengur allt, sem
vér enn þekkjum eða skiljum. En sökum syndleysis hans,
heilagleika og fullkomnunar getur sál hans staðið í sambandi
við guðlegar verur. Og vegna hans óendanlega kærleika til
allra getur sál hans 'lesið sig inn i hugskot manna, og beitt
þar áhrifum sínum. Sál Jesú veit og sér það, sem öðrum er
hulið, og getur birt huganum það, og látið hann starfa sam-
kvæmt því. Fjöldinn af lækningum Jesú er því auðskilinn.
Aftur á móti er sennilegt, að sagnir um sumar lækningar
hans stafi frá misskilningi, rangskildum nöfnum á sjúkdóm-
um eða þá, að Jesús hefir verið gæddur þeim mætti, sem
hafinn er langt yfir mannlega þekkingu og skilning. Það
er mikilvægt að veita því athygli, að jafnaðarlega þarf hinn
sjúki maður að hafa sterka trú eða andans styrkleika til að
geta læknazt. Sé enginn styrkleiki eða vilji til, verður hann
eigi vakinn til þess að yfirbuga sjúkdóminn.
Þá er og auðsætt, að Jesús hefir læknað með orkustreymi.
Þrásinnis ber það við, að menn læknast með því að snerta
klæði hans, það er að segja fyrir návist við liann. Merkust
er frásagan um konuna, sem veik hafði verið í 12 ár af blóð-