Morgunn - 01.06.1975, Page 89
í STUTTU MÁLI
87
Ég vil taka það fram að sumt af tengdafólki hennar vildi
að hún væri jörðuð i Reykjavík og finnst mér að sjóferðin í
draumnum tnkni, að það ætti að jarða hana þar sem hún vildi
helzt vera í Flatey á Breiðafirði. Þar hafði hún átt heima, en
ýmsar ástæður réðu því að þar gat hún ekki dvalið eftir að
hún veiktist. Hún var jörðuð við hlið mannsins síns í Flatey.
T nokkur ár eftir burtför hennar úr þessum heimi var hún
oft í draumasambandi við mig, sérstaklega þegar eitthvað
bjátaði á hjá mér. Þessir draumar veittu mér styrk og mér
kom þá ekkert á óvart. En nú er hún hætt að birtast mér í
draumi. Ég hef alltaf verið herdreyminn og hef getað tekið
mark á draumum mínum.
Margrét Eyjólfsdóttir,
Dagur Halldórsson,
Sogabletti 127, Rvk.
Á jólaföstu 1843 dreymdi Jóhann kandidat Halldórsson,
prófasts á Melstað Ámundasonar, — var hann þá í Kaup-
mannahöfn — að hann þykist koma í kirkjugarðinn á Mel-
stað. Þykir honum faðir sinn koma þar á móti sér glaður í
bragði, rétta sér höndina og segja: „Komdu með mér.“
Draumurinn þýddi það, að Jóhann dó skömmu eftir eða
á nýjársdag 1844; faðir hans dó sumarið áður úr sóttinni
sem þá gekk. Bar svo til að Jóhann kom inn á skipi á ísaf jörð
og fór þaðan landveg norður; og er hann kom að Melstað var
nýliðinn önd upp af föður hans og veitti hann honum ná-
hjargimar. — Jóhann drukknaði af Löngubrú í Kaupmanna-
höfn.