Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 99
BÆKUR
97
Erich von Daniken:
GEHSEMAR GUÐANNA.
Þýðari: Dagur Þorleifsson.
Útgefandi: Bókaútgáfan öm og örlygur, 1974.
Um víða veröld getur að líta furðulegar rústir, ævaforn
mannvirki og tmdarlegar minjar, sem eru að því leyti frá-
bmgðnar venjulegum fornminjum, að tilurð þeirra og stað-
setning er lærðustu mönmnn í fomleifafræði, sagnfræði,
mannfræði og trúarbragafræði algjör ráðgáta. Þeim er sannar-
lega vorkunn, þrátt fyrir allan lærdóm sinn, því hvaða skýr-
ingu er að finna á bjargi, á stærð við fjögurra hæða hús og
2,000 lestir að þyngd, sem meitluð hafa verið i þrep og sæta-
raðir? Og hvaða reginorka hefur verið þar að verki, er það
var flutt langan spöl og þvi hvolft?! Hver getur útskýrt hell-
ana undir Ekvador með hvelfingum og sölum 250 metra undir
yfirborði jarðar, sem geyma feiknamerkilegar og lítt skiijan-
legar minjar og auk þess eins konar bókasafn úr má’lmi?
Og þetta er enn ekki vísindalega rannsakað sökum fjárskorts.
Bækur Svisslendingsins Erichs von Danikens geyma svo
margar frásagnir af slíkum fjársjóðum og fyrirbærum, að þær
gætu vel borið nafnið Ótrúlegt — en satt. Þar er einnig að
finna áleitnar spurningar urn sitt af hverju, sem vísindamenn
og sérfræðingar alls ekki hafa getað fundið nein svör við, og
ekki einu sinni dirfst að koma fram með tilgátur um. Svo
sem: Hvernig stendur á því að nákvæmar lýsingar á hinum
geigvænlegu afleiðingum kjarnorkusprengja er að finna í
fomsögulegum kviðum, sem varðveist hafa á leirtöflum, er
fundist hafa í jörð? Hvaðan kom fornsögulegum kynþáttum
tækni til að höggva steinblokkir tugi lesta að þyngd úr hörðu
bergi, flytja þær langar leiðir og leggja í hleðslur af ótrúleg-
ustu nákvæmni, eins og um tígulsteina væri að ræða. Hverjir
voru þeir synir guðs, er girntust dætur manna og gátu böm
með þeim, að því er segir í Móse-bókum?
Þótt Erich von Dániken sé að vísu fjárhagslega sjálfstæður
maður og geti þess vegna þeyst heimshorna milli í leit að
alls konar furðulegum fomleifum, sem hann svo mælir og
7