Morgunn - 01.06.1975, Síða 103
BÆKUR
101
á þetta án þess að hafa kynnt okkur önnur trúarbrögð en
þau, sem við erum alin upp við. Hér geta fræðin sem fjalla
um samanburð á trúarbrögðunum komið okkur að góðu gagni.
Þau hafa aldrei verið mikilvægari en einmitt nú á dögrnn,
þegar misskilningur milli þjóða og kynflokka getur kveikt það
bál, sem öllu getur tortímt. Vanþekking á þessum efnum get-
ur auðveldlega leitt til fordóma, sem svo leiða aftur til skorts
á umburðarlyndi.
Biblía kristinna manna og gyðinga er ein hinna miklu,
helgu ritninga heimsins. Ekki mun fjarstæða að ætla að um
þriðjungur mannkynsins sæki í hana trúarskoðanir sínar. En
hinu megum við samt engan veginn gleyma, að tveir þriðju
hlutar meðbræðra okkar tilheyra öðrum trúarbrögðum heims-
ins. Við höfum ekki lengur ráð á því, að láta vanþekkingu eða
misskilning aðskilja okkur sálfræðilega.
Okkur kristnum mönnum er engu síður nauðsynlegt að
hafa réttan skilning á helgiriti okkar Biblíunni. Hatrammar
deilur kristinna manna innbyrðis sýna með hve mjög ólikum
skilningi við lesum þessa helgu bók. öll þau rit, sem auka
réttan skilning okkar á einhverjum atriðum i þessari bók bóka,
ættu því að vera vel þegin. Það er ekki svo að skilja að Biblíu-
handbókin þín bregði neinni nýrri birtu á túlkun heilagrar
ritningar, enda er henni ekki ætlað það hlutverk. En svo mik-
inn fróðleik er þó þar að finna, að hún ætti að geta verið öll-
um áhugamönnum um lestur hennar til mikils gagns, ekki
síður en prestum, guðfræðinemum, kennurum og nemend-
um hinna ýmsu skóla. Meginefni bókarinnar skiptist i um 50
þætti, sem gerð eru nákvæm skil. Þá eru í henni meira en
1200 uppsláttarorð i stafrófsröð, sem visa til annara orða, svo
gildi bókarinnar verður við það enn meira. Þá er það mikill
kostur að ýmislegt af efni hennar er lagað að íslenzkum að-
stæðum.
Bókin er mjög vönduð að öllum frágangi og er það útgáfu
þeirra Arnar og örlygs til sóma. Bókina þýddi séra Magnús
Guðjónsson og hefur það verið seinunnið og mjög vandasamt
verk. Hefur hann leyst það svo vel af hendi að betra verður