19. júní


19. júní - 19.06.1982, Blaðsíða 9

19. júní - 19.06.1982, Blaðsíða 9
Ragnheiður Jónsdóttir Ream 1917-77 Hrafnhildur Schram. Eftir hina stóru yfir- litsýningu á verkum Ragn- heiðar Jónsdóttur Ream að Kjarvalsstöðum í vetur, dylst varla nokkrum að þar er á ferð sérstæður og kraftmikill lista- ntaður sem túlkar náttúru lands síns á nýjan og ferskan hátt með sterkum litum og iiraðri og agaðri pensilskrift. Við fyrstu sýn virðast lands- lagsmyndir hennar vera hug- lægar abstraktionir, vel að- greindir stórir litafletir sem minnka eftir því sem ofar dreg- ur í myndinni og minna oft á steina í hleðslu. Litirnir eru djúpir og safamiklir í blæbrigð- um grænna og blárra tóna sem hún stundum sker með snögg- um áherslum rauðra og gulra lita er gefa myndinni hrynjandi sem orkar frekar á hugann en sugað. En þegar augað hefur flögr- að yfir myndílötinn og fundið djúpbláan sjóndeildarhringinn þar sem himinn og haf umvefj- ast, falla litafletirnir saman og mynda samofna heild íslensks iandslags og hin ytri fyrirbæri Ur náttúrunni kvikna hvert af óðru. Líkt og kínverskir málarar Eorlir Ragnheiður á landið að °lan frá sjónarhorni fljúgandi Idgls og skapar á þann hátt °endanlega víðáttu sem heldur áfram langt fyrir utan rannna málverksins og gefur áhorfand- anum með hjálp ímyndunar- aflsins tækifæri til að ljúka sjálfum við myndina. Oft hef ég velt því fyrir mér hversu latækari heimurinn væri af góðum listamönnum ef tilviljanir og stundum smáslys hefðu ekki átt sér stað og orðið til að beina þeim inn á lista- brautina. í tilviki Ragnheiðar voru það nágrannar sem hröktu hana í fangið á mynd- listargyðjunni. Músíkin hal'ði alltaf verið stór þáttur í lífi hennar og liún hugði á fram- haldsnám í píanóleik, þegar hún ásarnt bandarískum eigin- rnanni sínum Donald flytur inn í hljóðbært hús í Washington og sendir innrás ljúfra tóna sem áttu misjafnlega við, inn í alla króka og kima hússins. Til að halda húsfriðinn bein- ir Ragnheiður kröftum sínum að þeirri listgrein sem ekki heldur vöku fyrir öðrurn en þeim sem hana stundar. Ragn- heiður var kornin hátt á fertugs aldur þegar hún hóf myndlist- arnám og á undra skömmum tíma nær hún fullum þroska í myndlistinni og hefur þar tón- listarnámið orðið henni gott veganesti. Ragnheiður og eiginmaður hennar flytjast heim til íslands 1969 og þá er Ragnheiður full- þroska listamaður með fimm ára listnám að baki og mikil- virka sýningarstarfssemi auk þess sem hún rak, ásamt félög- um sínum, um nokkra ára skeið gallerí í Washington. Hún var í fullri starfsorku þegar hún lést langt fyrir aldur fram aðeins sextug og var þá stórt skarð höggvið í fremstu röð íslenskra myndlistar- manna. Hrafnhildur Schram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.