19. júní


19. júní - 19.06.1982, Blaðsíða 4

19. júní - 19.06.1982, Blaðsíða 4
Frá ritstjóra „Hef ég þó verið að vinna kvenmanns- verk allt mitt Iíf? “ er haft eftir kennimanni einum er var að láta af embætti, þegar kona bauð sig fram til að taka við starfi hans. í orðunum felst ekki aðeins lítils- virðing einstaklings í garð kvenna; sjálft orðið kvenmannsverk hefur í sér fólgna niðrandi merkingu sem ber þess vitni hversu lítils metin störf kvenna hafa verið um aldaraðir fram til vorra daga. Menn- ingararfleifð þjóðar og hugsunarháttur aldanna varðveitist í orðfæri hennar og stundum geta orðin ein viðhaldið úreltum hugmyndum og fordómum. I»að eru einmitt kvenmannsverkin sem eru til sérstakrar umfjöllunar í blaðinu að þessu sinni, sömu verkin og konur hafa ævinlega innt af hendi nema hvað nú er sumum þeirra greidd laun fyrir vinnu sína á hinum svokallaða vinnumarkaði; aðrar vinna kauplaust þessi sömu störf inni á heimilum sínum. Að vísu hafa konur í auknum mæli farið út fyrir hið hefð- bundna umönnunar- og uppeldishlut- verk úti í atvinnulífinu, svo sem í alls kon- ar framleiðslu- og þjónustustörf, en það loðir enn við að störf þeirra eru langoftast þau sem lægst eru metin, bæði til virðing- ar og launa. Þau eru aðeins sárafá starfs- svið í þjóðfélaginu þar sem hægt er að tala um fullan launajöfnuð, hvað þá svipaðan fjölda karla og kvenna. Við blasir sú stað- reynd að vinnumarkaðurinn er kyrfilega skiptur í kvennastörf og karlastörf. Hér þarf að vinna markvisst, bæði á sviði menntunar og stjórnunar, ef einhverra breytinga ó að vera von. Það er ekki aðeins að konur búi við það hlutskipti að vinna jafnan lægst launuðu störfin í atvinnulífínu. Þær eiga einnig mun örðugri aðgang að umræddum störf- um ef þær hafa uppfyllt þær skyldur við börnin sín sem fyrir aðeins einum manns- aldri þóttu jafnsjálfsagðar og náttúrulög- málin. Það er ekki fjarri lagi að áætla að allflestar konur komnar yfír þrítugt hafí varið a. m. k. nokkrum árum við skyldu- störf þessi og því er hér ekki um einhvern takmarkaðan hóp vinnuaflans að ræða. Hér er stórt mál á ferðum og það krefst stórhugs og stórra úrræða að leysa það. Fámenn þjóð eins og við Islendingar hefur hreinlega ekki efni á öðru en að virkja þennan fjölmenna hóp í atvinnulífínu með öllum tiltækum ráðum. Annars ber ekki á öðru en að konur séu um þessar mundir að vakna til vitundar um gildi sinnar sérstöku reynslu, um gildi starfa sinna, kvenmannsverkanna, jafnt inni á heimilum og utan. Það hcfur varla farið fram hjá neinum að kvennastéttir, eins og fóstrur, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar, hafa undanfarið lótið til sín taka í launamálum og fengið hlut sinn leiðréttan eftir allharða kjarabaráttu. Þá hafa þau undur og stórmerki orðið ■ nýaf- stöðnum sveitarstjórnarkosningum að konum fjölgaði um liðlega helming meðal kjörinna fulltrúa. Það er að sjálfsögðu nærtækt að ætla að kvennaframboðin norðanlands og sunnan hafi hér átt drýgstan hlut að máli, en skyldu kvenna- framboðin sjálf ekki cinmitt vera af- sprengi þessarar vakningar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.