19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1982, Qupperneq 13

19. júní - 19.06.1982, Qupperneq 13
af vinnumarkaði um tíma og/eða stytta sinn vinnutíma utan heimilis. Hlutastörf fyrir karla tíðkast ekki ennþá og hafa lítið verið til umræðu. Það er því ljóst, að sveigjanlegur vinnutími og hlutastörf á atvinnu- markaði eru hagsmunamál, sem kon- ur eiga að stuðla að, en ekki aðeins sjálfum sér til handa heldur fyrir bæði kynin.“ Eftir að hafa rætt aðstöðumun karla og kvenna af þessum orsökum, endurmenntun og fullorðinsfræðslu segir Anna: „Um þessi mál þarf að vekja almenna untræðu og konur eiga að beita sér fyrir því og gera sér að markmiði að hafa mótandi áhrif á íullorðinsfræðslu. Með því að skapa móguleika á endurmenntun og nám- skeiðahaldi af ýmsu tagi tryggja kon- ur þátttöku sína og áhrif í atvinnulífi og jafna ábyrgð kynjanna á öllum sviðum.“ SVEINN INGVARSSON konrektor: »Konur 70% stúdenta úr öldungadeild“ Inntökuskilyrði við öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð eru ekki önnur en þau að umsækjendur kafi náð 21 árs aldri og kennsla og uámsframboð miðast við að stúd- entsprófi sé lokið innan ákveðinna þmamarka. Kennsla fer fram síðdeg- is og á kvöldin. Skólaárið skiptist í tvær annir og er aðsókn meiri en hægt er að sinna. Að undanförnu v°ru 650—700 nemendur skráðir á hverja önn. í fyrstu voru konur um 75% nemenda í öldungadeildinni, en eru nú unt 67% og er meðalaldur nemenda nú lægri en í fyrstu. Fyrstu stúdentar útskrifuðust úr deildinni í maí 1974, en alls liafa útskrifast 517 stúdentar, Jtar af 361 kona eða 70%. ANNA L. STEFÁNSDÓTTIR starfsmaður hjá Hagkaupum: „Yngra fólkið gengur fyrir“ Næst var leitað fanga hjá tveimur konum sem báðar starfa á fjöl- mennum vinnustöðuin og hafa tengsl við launjtegasamtök. Það eru þær Anna L. Stefánsdóttir starfsmaður hjá Hagkaup og Auður R. Torfadóttir skrifstofumaður hjá Sláturfélagi Suðurlands. „Já, hún er ntjög erfið,“ svaraði Anna L. Stefánsdóttir spurningunni um endurkomuna. „Ef karlmaður eða yngri kona sækja um starf, sem auglýst er, þá er nær útilokað fyrir konu eldri en, segjum 40 ára að fá starfið, nema í gegnum kunnings- skap. Ég tel að flestir vinnuveitendur velji nær eingöngu yngra fólk. Það ég best veit, er lítið gert til úrbóta. Og inér dettur helst í hug að svara Jtví til hvort ekki mætti innan einhverra kvennasamtaka, stofna til námskeiðahalds, á nokkrum sviðum, fyrir þær konur sem vilja komast út á vinnumarkaðinn. Þær þurfa sumar hverjar, að minnsta kosti, að fá hjálp, |iví þær eru hræddar og óöruggar. Þessar konur eru ekki í neinu stéttarfélagi, svo Jiað þyrfti að koma til einhver félagsskapur til aðstoðar.“ „Annað sent mér þykir ástæða til að geta um“ hélt Anna áfram „er að meðan konan hefur ekki eigin fjárráð og þarf að sækja allt í vasa maka síns, er hún ekki „frjáls“. Peningar hafa ntikið að segja í lífi okkar allra. Karlmenn eru nú í flestum tilfell- um mjög eigingjarnir, eins og við þekkjum flestar, þeir vilja hafa kon- una sér undirgefna. Sem betur fer er þetta að breytast, nokkuð hratt. Ung- ar konur í dag vilja jafnrétti og láta ekki segja sér fyrir verkum.“ AUÐUR R. TORFADÓTTIR skrifsíofumaður hjá SS: „Ritvinnsla í stað ritarans“ „Lftirspurn eftir vinnuafli á hverjum tíma ræður hér ntiklu og ennfremur sú reynsla og menntun sent viðkom- andi hefur aflað sér“ var innlegg Auð- ar Torfadóttur til málsins. Hvað skrifstofustörfum viðkemur, taldi hún að verzlunarmenntun á hverjum tíma hafi miðast við og fylgt þeirri þróun, sem hefur verið í vinnubrögð- um og tækjum í verzlunarstétt. „Hingað til hefur verið tiltölulega auðvelt fyrir konur að tileinka sér nýja tækni, sem fram hefur komið á nokkurra ára bili, til dæntis þegar rafntagnsvélar og tæki leystu þau liandknúnu af hólmi“ sagði Auður, "vinnubrögðin sem slík breyttust ekki svo ntikið en urðu auðveldari.“ Þá vék Auður nokkrum orðunt að tölvuvæðingunni og breytingum í kjölfar hennar. „Tölvurnar munu í æ ríkara mæli yfirtaka ýmsa verkjiætti og mun þá 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.