19. júní


19. júní - 19.06.1982, Side 17

19. júní - 19.06.1982, Side 17
SONJA BACHMANN skólaritari: „Kvíði ininn var ástæðulaus44 „Því er ekki að neita, að ei'tir 10 ara lilé frá störfum utan heimilis var eg frekar kvíðafull yfir að hefja störf að nýju,“ sagði Sonja Bachmann Jiegar spurningarnar voru lagðar f'yrir hana. Sonja hefur nýlega hafið störf' sem skólaritari ísaksskóla. Ilvers vegna var Sonja kvíðafull? Því svarar hún á eftirfarandi liátt: „Það sem ég hafði mestar áhyggjur uf, var að starfsaðferðir væru hreyttar og ýmsar nýjungar komnar h’arn, sem myndu valda mér erfið- leikum í starf'i. En í |iessu tilfelli var hviði minn ástæðulaus, sökum Jiess að mér var mjög vel tekið á vinnu- staðnum og starf' mitt er ekki frá- brugðið því starfi er ég hafði áður.“ Hér kemur fram að Sonja haf'ði unnið við skrifstofustörf fyrir tíu a'um, en staðnæmst við húsmóður- starfið í áratug. Ilafði hún hug á því að fara fyrr út á vinnumarkaðinn? „Eg hafði hugsað mér að f'ara fyrr ut að vinna,“ segir Sonja, „eu vegna þess að ein dóttir mín þarf á sér- hennslu að halda, (>arf ég að sinna henni meira en eðlilegt er um barn á hennar aldri. kuinig má benda á það að skóla- 'uni hennar var Jrað stuttur á liverj- U|n degi, að mér gafst ekki kostur á að fara á vinnumarkaðinn aftur, fyrr en nú. Eg tel Jrað mjög mikilvægt að konur, sem liafa áhuga á að komast ut <il vinnu utan heimilis, ættu ekki að draga Jjað of lengi, vegna Jjess að Jrað er erfiðara ef’tir því sem lengra hður að lief'ja störf að nýju. Til að stuðla að því að auðvelda konum endurkomu í atvinnulífið, væri nauð- synlegt að þær ættu völ á stuttum endurmenntunarnámskeiðum. Nám- skeiðum þar sem f’yrri starfsreynsla og menntun væru rif'juð upp og nýj- ungar kynntar.“ EDDA JÓNSDÓTTIR ritari: Húsmóðurstarfið ekki lengur talið fullnægjandi ævistarf „Eftir burtfararpróf frá Kvenna- skólanum í Reykjavík og enskunám í Englandi einn vetur. starfaði ég á skrifstofu í rúm tvö ár“ sagði Edda Jónsdóttir einn viðmælanda okkar. Hjá Eddu eins og fleiri konum tók við tímabil barneigna og barnauppeldis ef'tir gif'tingu. Um þau fimmtán ár sem hún var ’ bara heima“ hefur hún Jtetta að segja. „Þessi ár voru á ýmsan liátt mikil breytingaár í þjóðfélaginu. Menntaskólar og fjölbrautaskólar spruttu upp. Stúdentspróf eru í dag jafn sjálfsögð og gagnfræðaskólapróf hér áður, og æ fleiri konur fóru í langskófanám. I Iúsmóðurstarfið var ekki lengur talið gott og gilt eða fullnægjandi sent ævistarf og hús- mæður sóttu út á vinnumarkaðinn í auknum mæli. Eg geri ráð fyrir að Jiessara áhrifa hali ga'tt hjá mér, Jjeg- ar börnin þrjú voru koinin vel á legg. Eg fór að líta í kringum mig eftir hálfsdagsvinnu.“ Þá er það spurningin nm endurkomuna: „Það var inikið átak að leita út á vinnumarkaðinn eftir langa fjarveru. Eg byrjaði á því að saTja uin skrif- stofustarf eftir auglýsingu í blaði en fékk ekki einu sinni svar. Það opnaði augu mín fyrir því að fieppilegra væri að sækja einhvers konar námskeið, taka próf' og fá réttindi. Fyrir valinu varð Einkaritaraskólinn og þaðan tók ég próf í ensku og enskum bréfa- skriftum. Prófið gaf mér kjark til að saikja um auglýst starf á skrifstofu Sjónvarpsins og þar starfaði ég um skeið. Ég man að fyrstu dagarnir voru erfiðir. Ég lagði mjög hart að mér og kom heim úr vinnutmi uppgefin á sál og líkama. En þetta vandist fljótt, ég náði fyrri hraða í vélritun eftir skamman tíma og í rauninni hafði ekki svo mikið breyst. Vélarnar voru að vísu fullkomnari, en störfin voru svipuð.“ Rekstur heimilis er ekki ólíkur rekstri fyrirtækis. Ilúsmóðir er jafnt framkvæmdastjórinn, sá sem stjórnar og skipuleggur, og sá sem annast þjónustustörfin. Segist Edda Jiess fullviss að ineð betri tækifærum til upprifjunar og endurmenntunar, séu húsmæður sem unnið hafa heima um skeið sízt lakari starfskraftur, en Jiað f’ólk sem hefur aldrei af vinnumark- aðinum farið. En hvað er brýnast að gera til að auðvelda konum enn frekar endurkomu á vinnumarkaðinn? „Ég las einhvers staðar ekki alls fyrir löngu, að örtölvubyltingin væri hafin og að ekki va;ri séð fyrir endann á öllum þeim breytingum sem sú bylting hefði í för með sér. Skrifstofuhald fyrirtækja á eftir að gjörbreytast ineð aukinni notkun fullkomnari tölva. Þess vegna er [rað mjög biýnt nú að fólk eigi kost á að fylgjast með nýjungum og auka taiki- færi til endurmenntunar. Ymis konar námskeið eru að vísu haldin en þau eru flest á vegum einkaaðila og Jiess vegna mjög dýr. Mér fyndist ekki frá- leitt að fella svona námskeið inn í fullorðinsfræðsluna til dæmis öld- ungadeildarinnar. Það fyrirkomulag gerði eflaust fleirum kleift að notfæra sér slíkt nánr.“ Edda hefur sjálf reynslu af endur- menntun og endurkomu á vinnu- markaðinn eins og í ljós hefur kornið hér að framan. En hún hefur ekki látið staðar numið. í dag starfar ftún sem ritari hálfan daginn á skrifstofu ÍSÍ og saikir jafnframt nám í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. 17

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.