19. júní


19. júní - 19.06.1982, Side 34

19. júní - 19.06.1982, Side 34
Kvenþjóð við störf. Föstudagsös í Hagkaupum. lireyfingarinnar? Greinilegt er af fyrmefndum tölum að karlar gína yfir lilut kvenna innan ASÍ, sem og í fleiri launþegasamtiikmn. Ilversu á- gœtar sein þessar 2 plús 19 konur eru, þá geta þær ekki haft inikil áhrif, því enginn má við margnum. í Vinnumarkaðinum 1980 kemur fram að rúmlega 10 þúsund konur unnu í fiskiðnaði, eða rösklega þriðj- ungur af öllum konum innan ASÍ. I bókinni Hélstu að lifið vœri svona? segir Stella Stefánsdóttir, fisk- verkunarkona hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur: „Konur ætla ekki í lisk- vinnu, þær lenda þar“. Stellii byggir ummæli sín á athugun sem hún gerði á aldri og aðstæðum samstarfs- kvenna sinna í frystihúsinu, og hún bætir við: „Engin þeirra sagðist mundu fara í fiskvinnu, ætti hún að byrja lífið að nýju“. Stella er á móti bónusnum, en um hann hefur hún þetta að segja: „Ilann verður til þess að fólk leggur langtuin meira á sig en líkaminn þolir, allt fyrir peningana. Pær sern eru handfljótar geta liaft gott upp úr sér, tvöföld verkamanna- laun eða meir, en ég skil ekki að þær endist lengi sein gera þetta að ævi- starfi. Og þegar verkafólkið afkastar hehningi rneiru eu l'yrr þá græðir at- vinnurekandinn þrefalt, eða eitthvað þar um bil! Oetta er ranglátt kaupkerfi alveg frá grunni!“ Að lokum segir Stella um bónus- inn: „Það er svo mikil hætta á að l'ólk útkeyri sig gjörsamlega, og ég veit þess mörg dæmi. Mér finnst líka ó- hugnanlegt að vera að pína vinnu út úr verðandi mæðrum annars vegar og konuin sern búnar eru að skila sínum starfsdegi hins vegar. Þeir berjast mest l'yrir bónusnum sem aldrei hafa þurft að vinna liann sjálfir“. Stella er ekki ein um þetta álit á bónusnum. Á fundi í Reykjavík ný- lega sagði Aðalheiður Bjarnfreðsdótt- ir, formaður Sóknar, að hún teldi að bónusvinnan yrði þungur áfellisdóm- ur á verkalýðshreyfinguna. Athyglisvert er að í fiskiðnaði, þar sem launakerfið hvetur til afkasta, eru konur með mun hu:rri bónus en karlar. Þetta bendir til þess að konur séru afkastameiri og duglegri en karl- ar. 1 áðurnel'ndri athugun, sem Stella Stefánsdóttir gerði á aldri og aðsta'ð- um samstarfskvenna sinna í frysti- liúsinu, kom fram að þær unnu yfir- leitt fimmtíu stundir í vinmmni og tíu til þrjátíu og fimm stundir heima á viku. Þess má geta að verið er að und- irbúa ítarlega athugun á afkasta- hvetjandi launakerfuin og tengslum þeirra við stöðu kvenna á vinnumark- aðinum og á heiinilum með tilliti til jafnréttis — samkvæmt tillögu frá Jafnréttisnefnd norrænu ráðherra- nefndarinnar. Næstllestar voru konurnar í Landssambandi íslenskra verslunar- manna, 7.142 af 11.394 félögum, sem er 62% verslunarmanna. Þegar við bætist sá fjöldi kvenna innan ann- arra stéttasamtaka, sem vinnur skrif- stofustörf, þá er ljóst að stærstur hóp- ur útiviunandi kvenna í landinu vinn- ur verslunar- og skrifstofustörf, en nákvæm tala um þann fjölda liggur ekki fyrir. Á höfuðborgarsvæðinu eru karlar við afgreiðslustörf með um 30% ha;rri laun en konur við söinu störf, eri af’ar lítið er um að konur í verka- lýðshreyfingunni séu yfirborgaðar. Vinnutími karla og kvenna er mjög svipaður við afgreiðslustörf. Ohemju launamunur er innan ASÍ. þar sem bónus eða tímamæld ákvæð- isvinna keinur ekki til, hafa konur lág laun. Hérna eru nokkur dænti um það, hvernig störf karla og kvenna eru ólíkt metin til launa: Öfaglærðir trésmiðir lá 42% hærri laun en saumakonur. Ofaglærðir málmsmiðir fá 20% hærri laun en konur í kjötiðnaði. Þetta eru þó sambærileg störf. Þessar tölur sýna að mun erfiðara er að vera kona en karl á vinnumark- aðinum. Stærstu „kvenfélögin“ innan ASÍ eru Verkakvennafélagið Framsókn og Starfsmannafélagið Sókn (í því eru nú 4 karlmenn). í Framsókn eru konur sem vinna í frystihúsum, við ræstingu í skólum og víðar, í mötu- neytum og í kjötvinnslu. Sóknarkon- ur vinna aftur á tnóti við ræstingu á sjúkrahúsum og dagheimilum, í heimilisþjónustu við aldraða og öryrkja, barnagæslu á dagheimilum o. 11. Þess má geta, að Sökn er eina stéttarfélagið á landinu sem hefur samið urn að foreldri fái greidd laun í veikindum barns og lyfjakostnað vegna veikinda. llúsmæður sem fara út á vinnuinarkaðinn lá heimilisstörf metin sem 3—4 ára starfsreynslu. Konur í Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja I apríl 1982 voru konur innan BSRB 9.550 af 16. 234 félögum, eða 59%. í 11 manna stjórn bandalagsins eru 3 konur, eða 27%, og í 64 manna samningánefnd eru 19 konur, eða 30%. Fjölmennustu kvennahópamir inn- an BSRB eru í Starfsmannafélagi 34

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.