19. júní


19. júní - 19.06.1982, Page 36

19. júní - 19.06.1982, Page 36
hópa. Áberandi er aó konur eru í yf'irgnæfandi meirihluta í la;gri launaflokkunurn, en eru fáar í þeim hærri. Lokaorð Ihiunverulegt láglaunafólk eru þeir sem vinna eftir hinum umsömdu launatöxtum sem stöðugt er vitnað í. Enginn trúir Iengur hinni síendur- teknu fullyrðingu, að í næstu samn- ingum eigi að leggja höfuðáherslu á að bæta kjör hinna lægstlaunuðu. Svo oft hafa slík loforð verið svikin. í könnun Kjararannsóknarnefndar kemur í ljós að greiðslur umfram taxta renna að inestu leyti til þeirra betur settu. Bónusinn og yfirborgan- irnar skipta láglaunafólkinu upp í fylkingu, þar sem hagsmunir eru mis- jafnir. Þetta hlýtur að veikja stöðu hinna lægstlaunuðu. Fólk á sama vinnustað veit ekki hvað næsti maður hefur í kaup. Jafnréttisbarátta kvenna tengist injög atvinnulífinu, en afstaða stjórn- valda til kjarabaráttu kvenna- stéttanna ber yfirleitt með sér að Iitið er á það sem algildan sannleika að kvennastörfin skuli la;gst metin af öllum störfum samfélagsins. IIiiuii óréttlátu launaskiptingu og óréttláta mati á kvennastörfum skal ekki breytt frekar en uin guðdómlega skipan væri að ratða. Kontið hefur þó fyrir að nokkur leiðrétting hafi feng- ist eftir langa og stranga baráttu, sbr. hj ú k runarfræðinga. llver skyldi vera orsökin fyrir því að konur eiga svo erfitt uppdráttar á vinnumarkaðinum sem raun ber vitni? Karlar skammta konum kjör — þeir ákveða hvers virði kvennastörfin eru — og ein af ástæðunum fyrir van- matinu kann að vera sú, að þar sem konur eru vanastar að vinna hin ólaunuðu heimilisstörf, þá álykta karlarnir sem öllu ráða: Hví skyldu þa;r ekki sættu sig við lág laun; lítil laun eru þó betri en engin? ()g kon- urnar kunna ekki heldur að gera kaupkröfur á borð við karla. Giftar konur sem vinna úti eru bara húsmæður sem skjótast út til að ná sér í dálítið af aukapeningum, og sem slíkar þurfa þær ekki mikið kaup. í augum heimsins er gift kona fyrst og freinst húsmóðir — kona manns- ins síns og móðir barnanna — og það Frwgt er ortiið að fulltrúi fjúr- múlarúðherra sagði við hjúkr- unarfrœðinga, meðan ú samn- ingaviðrœðum þeirra stúð, eitt- hvað ú þú leið að þwr þyrftu enga kauphwkkun — þwr vwru giftar svo miklum hútekju- rnönnum. Pessi orð lýsa betur en flest annað hinni sönnu afstiiðu hins karlstýrða samfélags til kvenna ú vinnumarkaðinum. gildir jafnt þótt hún gegni eða hafi gegnt fullu starfi á vinnumarkaðin- um. Um þetta hefur mátt sjá da;nú í minningargreinum um konur sem voru útivinnandi húsmæður. Stund- um er alveg sleppt að geta um feril konunnar á vinnumarkaðinum, eins og um feimnismál va;ri að ræða, en aftur á móti er hafið til skýjanna hið fórnfúsa og göfuga starf húsfreyjunn- ar. Já, það er erfitt og sársaukafullt, einkanlega fyrir marga karhnenn, að viðurkenna nútíma staðreyndir í gamalgrónu þjóðfélagi sein er í jafn örri breytingu og okkar. Við blasir að konur eru verr laun- aðar en karlmenn og þurfa oft að leggja harðar að sér fyrir hverja krónu sein þær þéna. Nokkrar breyt- ingar hafa orðið í rétta átt, þótt mikið vanti enn á. Það er mjög til bóta að nú er unnt að fá all greinagóðar upp- lýsingar um vinnumarkaðinn. Á síð- astliðnum 10 árum hefur kaupmátt- ur verkakvenna aukist um 5% meira en verkakarla. Trúlegt er að drjúgan þátt í þessu eigi bónusgreiðslur og tímamæld ákvæðisvinna, seitt ha'kk- ar ineðallaun kvenna. Eftir lestur skýrslna uin skiptingu launa eftir kynjum finnst manni lík- ast Jjví að í þessu landi búi tva;r þjóðir — karlþjóð og kvenþjóð — svo ólík ertt kjörin. Þessu verða konur að breyta. Rannveig Jónsdóttir. Ilelstn prentnðar lieiitiiliiir: Fréttabréf Kjararannsóknarnefndar, Rvík, nóv. 1981. Vinnumarkaðurínn 1080, útg. Framkvæmda- stofmm ríkisins, Rvík, apríl 1982. Pingtíðindi 34. þings A. S. /. 1980. Rvík 1981. 36

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.