19. júní


19. júní - 19.06.1983, Page 6

19. júní - 19.06.1983, Page 6
reist. E.t.v. er það ekki réttlátt að stilla þeim upp saman á þennan hátt og gera til þeirra þá kröfu, að þær líti á sig sem einhvers konar samfylkingu. Og þó. Því ef spurt er, líkt og gert var á Hótel Sögu, hvort vænta megi samstarfs kvenna á þingi, samvinnu við kvenna- samtök, hvort starfsaðferðir og yfir- bragð Alþingis muni breytast með auknum hlut kvenna þar — ef spurt er slíkra spurninga, þá er það vegna þess að reynslan sýnir, að nokkurs er að vænta. Áður en við hyggjum að svör- um þingmannanna, er síður en svo úr vegi að glugga í þau svör, sem reynslan geymir í sínu pokahorni. Hvað hafa konur gert? Á ráðstefnu Jafnréttisráðs um Kon- ur og stjórnmál, sem haldin var í febrúar s.l. flutti Auður Styrkársdóttir erindi byggt á rannsóknum sínum á stjórnmálaþátttöku íslenskra kvenna. Þá varpaði Auður fram þeirri spurn- ingu hverjar helðu þó verið gjörðir þeirra tiltölulega fáu kvenna, sem setið hafa á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur. Um þingkonurnar sagði Auður m.a.: „Það yrði of langt mál að telja hér upp allar gjörðir þingkvenna. Eg mun því rétt drepa niður í bunkanum til að gefa ykkur smáþef af réttunum. Ingibjörg H. Bjarnason flutti á þinginu 1923 tillögu til þingsályktunar um byggingu landsspítala, en konur höfðu hafið landssöfnun til spítala árið 1915 til minningar um kosningarétt kvenna. Sú söfnun gekk mjög vel og framlag kvenna munaði miklu... Guðrún Lárusdóttir beitti sér mjög fyrir því á þingi að hér yrði byggt drykkjumannahæli og sömuleiðis vist- arskóli fyrir vanheil börn og unglinga. Hún talaði mjög fyrir vangefnum börnum og unglingum, er lent höíðu á glapstigum og flækingi og vildi að sam- félagið æli önn fyrir þessum smáu þegnum sínum. Katrín Thoroddsen bar m.a. fram frumvarp um dagheim- ili fyrir öll landsins börn innan skóla- skyldualdurs. Það fruinvarp var ekki samþykkt, en árið 1981 gaf ríkisstjórn- in fyrirheit í samningum við verkalýðs- 6 hreyfinguna að dagheimilisþörfí land- inu verði fullnægt næstu tíu árin. Við ynnum kvennabaráttunni áreiðanlega ekkert ógagn þótt við litum eftir þessu loforði og tækjum þannig upp þráðinn, þar sem Katrín skildi við hann. Árið 1950 fengu Kristín Sigurðar- dóttir (Sjálfstæðisfl.), Rannveig Þor- steinsdóttir (Framsóknarfl.) og Soffia Ingvarsdóttir (varam. fyrir Alþýðufl.) samþykkta þingsályktunartillögu um uppeldisheimili fyrir vangefin börn og unglinga. Rannveig Þorsteinsdóttir beitti sér að auki mjög fyrir málum eins og heimilishjálp og orlofi hús- mæðra og aðgerðum í húsnæðismál- um, sem þá voru mjög bágborin. Ragnhildur Helgadóttir talaði á hverju þingi fyrir uppeldisheimili fyrir ungar og afvegaleiddar stúlkur og Auður Auðuns talaði fyrir jafnræði hjóna í fjármálum í hjónaböndum, er gengu í gildi fyrir 1924.“ Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra Samvinna þvert á flokksbönd ,,Raunar hafa sum mál gengið eins og rauður þráður í gegn um þingsögu kvenna. Ein þingkona hefur tekið við afannarri um að fylgja ákveðnum mál- um eftir. Þar má nefna uppeldisheimili fyrir börn og unglinga, sérsköttun hjóna og ýmis réttindamál þeirra á millum og loks ýmis ákvæði um al- mannatryggingar. Skýrasta dæmið um samvinnu kvenna á þingi er e.t.v. dæmið hér að ofan um uppeldisheimili handa vangefnum börnum og ungling- um, sem þær Kristín og Soífia komu í gegn. Annað dæmi langar mig einnig til að nefna hér; árið 1957 sátu Adda Bára Sigfúsdóttir og Jóhanna Egils- dóttir (Alþýðubandalag og Alþýðu- flokkur) sem varamenn á þingi og báru þær þá fram tillögu ásamt Ragnhildi Helgadóttur, Sjálfstæðisflokki, um endurskoðun á ákvæðum um barnalíf- eyri. Auðvitað vil ég ekki halda því fram að þingkonur hafi allar verið eins eða allar talað fyrir máli kvenna sff- staklega í öllum málum — nema þá kannski Ingibjörg H. Bjarnason. Hin- ar konurnar voru fulltrúar stjórnmála- flokka og stóðu með llokksbræðrum sínum fyrst og fremst. Þó finnst mér málflutningur þeirra töluvert annars eðlis en málflutningur karlanna. Þær tóku að sér ýmis mál og létu karlana heyra það, ef þeim fannst tregðan keyra fram úr hófi.“ Ekki óréttmæt óskhyggja! f þessum orðum felast vissulega já- kvæðar vísbendingar um samstöðu kvenna í vissum málaflokkum. Auðvit- að mætti nefna hér fieiri og nýrri dæmi þótt það sé látið vera hér. Ef litið er til svara þeirra kvenna, sem eiga munu sæti á næsta Alþingi, er enn frekari stoðum rennt undir þær væntingar, sem virðast gerðar til þeirra. Ragnhildur Helgadóttir þóttist viss um að samstarf á þeirra í millum ætti eftir að komast á en sagðist ekki geta svarað þeirri spurningu enn sem kom- ið væri, hvort þar yrði um formlegt samstarf varðandi löggjafir að ræða. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir kvað þær Kvennalistakonur hal'a fullan hug á samstarfi og vonast eftir að þær gætu sameinast um mál, sem væru ofarlega á forgangslista kvenna. Jóhanna Sig- urðardótdr sagðist mundu leggja sig fram við að svo gæti orðið, því þótt hér væri um að ræða níu konur frá 5 flokk- um eða samtökum sem tækju mismun- andi afstöðu til leiða að markmiðum og ættu því ellaust eftir að greina á um margt, þá hlytu þær að geta staðið

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.