19. júní - 19.06.1983, Síða 36
Skipulag
á atvinnu og einkalífi
Ráðgjöf í Seattle ætluð konum
Jónína M.
Guðnadóttir
Eins og í'ram heíur komið gekkst
KRFI á síðastliðnum vetri fyrir ráð-
stefnu sem bar yfirskriftina ,,Að koma
aftur út á vinnumarkaðinn“. Lesendur
blaðsins rekur eflaust minni til að fjall-
að var um þetta efni all ítarlega í fyrra,
en við vinnslu þess efnis kom greini-
lega í ljós hversu brýnt og umfangs-
mikið mál var hér á ferð. Það kom líka
á daginn að ráðstefnan höfðaði til
margra því að þáttakendur urðu á
annað hundrað, að meirihluta konur á
miðjum aldri.
f framsöguerindum kom fram
margvísleg vitneskja um vandkvæði
kvenna þegar þær hafa sinnt uppeldis-
skyldum sínum fyrir fjölskylduna og
þjóðfélagið og vilja taka upp þráðinn að
nýju út á vinnumarkaðinum eða leita
þangað jafnvel í fyrsta sinn. Margt af
þessu var að sjálfsögðu vitað um en
þátttakendur voru þó samdóma um
gagnsemi þess að safna slíkri vitneskju
saman á einum stað. Ennfremur var
leitt fram í dagsljósið ýmislegt sem
gera má til úrbóta á þessu sviði, svo
sem bætt og aukin fullorðinsfræðsla,
aukinn sveigjanleiki vinnumarkaðar-
ins sjálfs og síðast en ekki síst umbætur
í skólamálum þannig að vinnutími
36
skólabarna haldist í hendur við vinnu-
tíma foreldranna eins og kostur er. Um
þá hlið málsins er fjallað annars staðar
í blaðinu.
Ráðgjafarþjónusta
í umræðum á ráðstefnunni var sú
hugmynd viðruð að KRFÍ heíði for-
göngu um að koma á fót einhvers kon-
ar ráðgjafarþjónustu fyrir konur í þeim
tilgangi að auðvelda þeim fyrstu spor-
in aftur út í atvinnulífið. Hér var hreyft
máli sem lengi hefur verið áhugi fyrir
meðal ýmissa félagsmanna og því kjör-
ið tilefni nú að sinna því frekar. Svo vel
bar í veiði að félaginu var kunnugt um
starfsemi af þessu tagi í Seattle í
Bandaríkjunum. Þar er starfrækt
stofnun er nefnist The Individual
Development Center (IDC) og kalla
mætti Sjálfþroskastöðina á íslensku,
en hún hefur með höndum ráðgjafar-
þjónustu fyrir fullorðna sem þurfa að
taka ákvarðanir varðandi einkalíf sitt
eða starfsferil. Þangað leita bæði konur
og karlar en starfsemin er þó í veiga-
miklum atriðum miðuð við þarfir
kvenna sérstaklega.
Stofnandi og forseti þessarar ráð-
gjafarstöðvar er kona að nafni Alene
Halvorson Moris. Hún er af íslensku
bergi brotin í móðurætt og kom hingað
til lands fyrir fjórum árum að vitja ætt-
ingjanna. Við það tækifæri heimsótti
hún skrifstofu KRFI og skýrði í stuttu
máli frá starfi sínu hjá IDC sem felst í
því fyrst og fremst að fá konur til að
byggja upp trú á eigin hæfileika og
meta á raunhæfan hátt hvers þær eru
megnugar. Það er einmitt í þessum at-
riðum sem skórinn kreppir hvað helst að
hjá þeim konum sem vilja komast út í
atvinnulífið á ný og því lék ritnefnd 19.
júní hugur á að leita nánari upplýsinga
um starfsemi þessa í því skyni að miðla
lesendum blaðsins og sjá hvort ekki
mætti færa sér að einhverju leyti í nyt
reynslu bandarísku stöðvarinnar hér á
landi.
Alene H. Moris svaraði umleitan 19.
júní umsvifalaust og reyndist fús að
greiða úr öllum spurningum blaðsins
og liðsinna félaginu í einu og öllu um
þetta málefni. Sendi hún blaðinu lang-
an pistil um tildrög þess að hún tók að
sinna málefnum kvenna sérstaklega og
kom á fót Sjálfsþroskastöðinni í Seattle
um leið og hún greindi í stórum drátt-
um frá starfinu þar.
I frásögn sinni segir Alene m.a.:
,,Það voru tveir atburðir í einkalífi
mínu sem réðu því að ég ákvað að
gerast ráðgjafi fyrir konur og liðsinna
þeim í að gera áætlanir fyrir atvinnu-
þátttöku sína og einkalíf... ,,Eg var
fimmtán ára gömul þegar móðir mín,
Sigurjona Jonasson Halvorson varð
skyndilega ekkja í Regina í Saskat-
chewan í Kanada. Eftir nítján ár sem
húsmóðir í fullu starfi varð hún að fara
að vinna fyri sér og þremur dætrum
sínum. Hún var illa undir það búin að
ytri kringumstæðum. Hún haíði að-
eins barnaskólapróf úr sveitaskóla....
Hún var 51 árs þegar faðir mínn lést og
af fjárhagsástæðum varð hún að fara
strax að vinna. Leit hennar að at-
vinnu, sú mismunun sem hún varð fyr-