19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1983, Qupperneq 40

19. júní - 19.06.1983, Qupperneq 40
Æfingin skapar meistarann Alþjóðasamtök Málfreyja (Inter- national Toastmistress Clubs) er einn fjölmennasti félagsskapur sinnar teg- undar— þ.e. Alþjóðleg samtök kvenna sem starfa á fræðilegum grundvelli og byggjast upp á þjálfun, æfingu og framför. Aðalmarkmið samtakanna beinist að því að þroska einstaklinginn og styrkja persónuleika hans, þannig að hann afli sér þjálfunar til forystu og verði hæfari til að tjá sig í ræðu og riti. Starfi í Málfreyjudeild má líkja við fé- lagsmálanámskeið, þó með þeim breytingum að viðkomandi getur sjálf- ur að miklu leyti ráðið hraðanum. Fundarsköp og fundartækni er stór hluti námsins, en þjálfun í ræðu- mennsku er einnig stórt atriði. Ekki eru allir fæddir ræðumenn en flestir ættu að geta þjálfað sig í að tjá sig ef á þarf að halda. Margar góðar hugmyndir komast aldrei á framfæri vegna þess að við- komandi þorir ekki að bera þær fram. Þetta skeður of oft hjá konum — þær gera fremur lítið ai’ því að leggja orð í belg á mannamótum. Ekki af því að þær hafi ekkert til málanna að leggja, eða enga skoðun á þeim, hcldur er það af óvana og öryggisleysi. Starf í Mál- freyjudeild gefur gott tækifæri til þess að stíga fyrstu skrefin í þá átt að koma hugsunum sínum og skoðunum á framfæri. Deildarfundir eru haldnir tvisvar í mánuði og hefur hver fundur ákveðið stef sem meginhluti dagskrár er unn- inn út frá. I hverri deild eru ekki íleiri Dolly Nielsen en 30 aðilar og ekki færri en 12. Það er til þess að allir séu jafn virkir þátttak- endur. Eins er með stjórn hverrar deildar, enginn getur gegnt sama emb- ætti í stjórninni lengur en eitt ár af sömu ástæðu, þ.e. að allir hafi jafna möguleika á að þjálfa sig í stjórnunar- störfum. Alþjóðasamtökin voru stofnuð árið 1938 vestur í Kaliforníu, af konu að nafni Ernestine White. Hún sá fyrir nauðsyn þess að konur væru knýjandi afl í verslunar-, stjórn- ar- og félagsmálum komandi kynslóða. Hún taldi nauðsynlegt fyrir hverja konu að bæta hæfileika sína til að tjá sig viturlega, hlýða á skoðanir annarra án fordóma og efla mannleg samskipti. Fyrsta málfreyjudeildin á íslandi var stofnað í janúar 1973 af bandarísk- um konum sem höfðu búsetu á Kefla- víkurílugvelli. Islensk kona, ErlaGuð- mundsdóttir, starfsmaður á ílugvellin- um, kynntist fljótlega þessum félags- skap og gekk í deildina. Eftir að hafa starfað þar um tíma, fann hún hjá sér hvöt til að kynna starfið fyrir íslenskum konum og á haustmánuðum 1975 leit fyrsta íslenska málfreyjudeildin dags- ins ljós, en það er Málfreyjudeildin Varðan í Keflavík. Tveimur árum síðar er fyrsta deild- in stofnuð í Reykjavík, og síðan hver af annarri á fáum árum. í síðasta mánuði var stofnuð deild á Isaflrði og er það tólfta íslenska deildin sem tekur til starfa. I þessum tólf deildum eru starf- andi u.þ.b. 320 konur, sem eiga það sameiginlegt að vilja þroska og þjálfa sig og bæta félagslega stöðu kvenna um allan heim. Samtökin telja nú um 26 þúsund meðlimi um víða ver- öld, og njóta vaxandi vinsælda, sem sanna það að starfog þjálfun kvenna á félagslegu sviði hefur orðið útundan og þær vilja sjálfar bæta úr því með sínum samtökum. Nútíma þjóðfélag gerir sífellt harð- ari kröfur til þegna sinna á félagslegu og menningarlegu sviði. Oft reynist það ekki nægilegt að hafa gömul prófef tjáningarhæfileikinn hefur verið svelt- ur. Margar konur reka sig á þennan vegg, þegar þær eftir margra ára störfá heimili sínu þurfa eða vilja öðru sinni út á hinn frjálsa vinnumarkað. Mörgum vex það í augum að þurfa að sækja um vinnu, kynna sig og ræða við starfsmannastjórann. Ef af ráðningu verður er næsti þröskuldur að byrja starf á ókunnum stað með fjölda afókunnu fólki. Störf í málfreyjudeildum geta létt konum þessa göngu til mikils munar, og einnig hvatt þær til að leita sér öðr- um fremur atvinnu þar sem reynir á mannleg samskipti — og mörg dæmi eru um það að þessi þjálfun hafi veitt konum brautargengi á félagslegu og viðskiptalegu sviði, en þær konur sem njóta þess í dag hafa líka gengið í gegn- um sína byrjunarerfiðleika í mál- freyjudeild. Það reynist flestum nokkuð fram- andi að koma inn á fund hjá málfreyj- um, því fundir eru mjög formfastir, t.d. getur enginn gengið inn í deildina nema að hafa áður setið að minnsta Dolly Nielsen skrifar um málfreyj usamtökin 40
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.