19. júní - 19.06.1983, Síða 47
„Við förum létt með það!“
Sigríður Ólafsdóttir
,,Ég byrjaði hér sem trillari í sumar-
vinnu fyrir átta árum, þremur árum
síðar fór ég að leysa af sem bílstjóri og
hef svo verið í nokkur ár fastur bíl-
stjóri,“ segir Sigríður Ólafsdóttir sem í
dag keyrir öskubíl. „Ég þarf að vera
mætt til vinnu um sexleytið á morgn-
ana, er sótt heim. Síðan sæki ég bílinn
og starfsfólkið í mínu liði. Svo er ég
laus rúmlega þrjú á daginn þegar ég
hef losað bílinn og skolað af honum.
Já, ég kann vel við staríið, gott kaup og
,,príma“ samstarf. Stundum hefur
hvarflað að mér að skipta um starf en
aldrei orðið úr. Það er leitun að jafn
vellaunuðu starfi og þessu.“
Hjá Hreinsunardeild Reykjavíkur-
borgar starfa fimm til sex konur að
sögn Sigríðar. Hún er spurð hvernig
gangi með hreinsun á „hennar bíl“ og
dekkjaskiptingu þegar þess þarf, hvort
hún standi þar jafnt að vígi og karlarn-
ir sem starfa með henni. Hún svarar
snarlega: „Við íörum nú létt með
það.“
Helga Hákonardóttir er „takka-
stjóri á öskubíl. Við hittum hana
ásamt Sigríði Ólafsdóttur einn morg-
un inn við Elliðaár. Hún tók í sama
streng og stalla hennar, starfið er ágætt
og launin líka. „Maður er stundum að
pæla í því að hætta, en það er erfitt að
komast í vinnu með sömu laun og hér.
Eg er sótt heim um sjöleytið á morgn-
ana og hætti um hálíþrjú. Þetta er akk-
orðsvinna og ef vel gengur erum við
búin um tíuleytið á föstudagsmorgn-
um.
Jú, þetta er stundum erfitt á veturna
en stórfínt á sumrin. Svo eru það fínir
menn sem við vinnum með, varla hægt
að óska sér betri vinnufélaga."
Helga Hákonardóttir hefur unnið ”í
öskunni“ samfleytt síðan 1978 og segir
kankvís: “Við Sigríður erum líklega
aldursforsetar í kvennaliðinu hér.“
Margrét Indriðadóttir
fréttastjóri Ríkisútvarpsins
„Hentar ekki öllum,
en það fer ekki
eftir kynjum“
„Þetta er nú bara eins og hvert ann-
að starf og hentar ekki síður konum en
körlum“, segir fréttastjóri Ríkisút-
varpsins Margrét Indriðadóttir, er
hún var innt frétta af hennar starfs-
vettvangi. Eftir því sem við komumst
næst mun Margrét vera eina konan á
landinu sem gegnir starfi fréttastjóra.
Margrét hefur gegnt þessu starfi síðan
haustið 1968.
,,Ég byrjaði hér á fréttastofunni 1.
desember 1949, þá nýkomin frá fram-
haldsnámi í Bandaríkjunum. Aður
starfaði ég í ein fimm ár sem blaða-
maður á Morgunblaðinu. Byrjaði þar
algjör græningi, kom beint frá próf-
borðinu að loknu stúdentsprófi. Fyrst
tók ég að mér að þýða framhaldssögur
og einhverja kvennasíðu á Morgun-
blaðinu. En ég fór fljótlega í fréttir,
bæði innlendar og erlendar.“
Margrét fór til framhaldsnáms í
Bandaríkjunum árið 1946 og hófstörf
á fréttastofunni eftir heimkomuna,
sem fyrr segir. Hún gegndi starfi vara-
fréttastjóra í nokkur ár.
Og í dag segir Margrét: „Ég er hissa
á því að ekki eru fieiri konur í frétta-
stjórastörfum. Ef til vill hentar þetta
starf ekki öllum, en það fer ekki eftir
kynjum.“
47