19. júní


19. júní - 19.06.1983, Page 48

19. júní - 19.06.1983, Page 48
Erfítt starf en gefandi Kristín Andrésdóttir skólastjóri Vesturbæj arskólans ,,Þetta er erfitt starf en gefandi“, segir Kristín Andrésdóttir skólastjóri um starf sitt. Hún hefur gegnt starfi skólastjóra í Vesturbæjarskólanum í þrjú ár. Starfaði áður um fimm ára skeið sem kennari í Fossvogsskólan- um. „Starfssvið skólastjórans er nokkuð annað en kennarans og í eðli mínu er ég frekar uppalandi en stjórnandi. Samt sem áður kann ég mjög vel við núverandi starf, enda sóttist ég eftir því á sínum tíma. Það er mjög ánægju- legt að vera þátttakandi í mótun skóla- starfsins. Aðstaðan hér í þessum gamla skóla er ekki nógu góð, en það horfir til betri tíma. Ný skólabygging mun væntanlega rísa hér í vesturbæn- um innan tíðar. En við hér höfum þurft að berjast fyrir tilvist okkar, hlutirnir koma ekki á silfurfati.“ Gamli Stýrimannaskólinn við Öldugötu í Reykjavík, nú Vesturbæjarskólinn, hefur gegnt merkilegu hlutverki sem menntaset- ur. En byggingin er gömul og aðstaðan erfið. Nú horfa nemendur og starfsmenn skólans fram á „betri tíð með blóm í haga“, ný skóla- bygging mun rísa á næstunni í vesturbæn- um. Á myndinni er Kristín Andrésdóttir skólastjóri ásamt tveim nemendum skólans. (Mynd Katrín Káradóttir). Liðsauki er okkar vettvangur Steinunn B. Birgisdóttir ,,Með skömmum fyrirvara yfirleitt leita atvinnurekendur til okkar eftir liðsauka og við útvegum vant fólk í viðkomandi störf.“ Það er Steinunn Björk Birgisdóttir sem segir okkur hér frá starfsemi fyrirtækisins Liðsauka, sem hún veitir forstöðu. Fyrirtækið var stofnað fyrir rúmu ári síðan og hafa nær eingöngu konur komið nálægt rekstri þess. ,,I upphali var eingöngu leitað hing- að að starfsfólki til afleysingastarfa, og í tímabundna vinnu. Veikindi, frí og mikið álag í skamman tíma í fyrirtækj- um eru oftast ástæðurnar fyrir því að leitað er til okkar. Á þessu rúma ári fra því fyrirtækið var stofnað hafa um fimm hundruð manns komið við sögu hér. Mest er spurt eftir fólki til skrif- stofustarfa, en þó einnig í mötuneyti, til útkeyrslu og í ræslingar. Almenn ráðningarþjónusta í störf til lengri tíma hefur síðan vaxið samhliða af- leysingaþjónutunni,“ segir Steinun Björk. Aður en hún hófstörfhjá Liðsauka, starfaði hún í þrjú ár hjá innflutnings- fyrirtæki, rak eigin verslun og var í innflutningi um tíma.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.