19. júní - 19.06.1983, Side 60
Jesús krefst jafnréttis
Þegar Jesús kom gerði hann rétt
kvenna hinn sama og hafði verið við
sköpunina. Þar með gerði hann líka
rétt karla hinn sama. Eg ætla að nefna
dæmi um það hvernig Jesús umgekkst
konur og vann fyrir konur á allt annan
máta en var hugsanlegt öðrum körlum
í samtíð hans. Þá töluðu karlar í Gyð-
ingalandi ekki við konur á almanna-
færi, snertu þær ekki, leyíðu þeim ekki
að bera vitni fyrir rétti, leyfðu þeim
ekki að sitja á sama stað og þeir í sam-
kunduhúsunum eða vera fullgildir
meðlimir þar, leyfðu það að þær væru
reknar fyrirvaralaust af eigin heimil-
um.
Jesús talaði við konur, hann tók í
hendi þeirra, leyfði þeim að taka í sínar
hendur, hann talaði við þær um innstu
leyndarmál starfs síns, trúði þeim fyrir
því, sem enn var ekki opinbert, hann
gerði þær að lærisveinum sínum, kall-
aði þær til að ferðast um með sér, hann
gerði þær jafn réttháar körlum í hjóna-
bandi. En það sem var mest alls, varað
hann gerði konur að fyrstu vottum
upprisunnar, upprisunnar, sem varog
er og verður alltaf undirstaða kristinn-
ar trúar.
Því er það hvorki meira né minna en
svo að Kristur leyfir ekki aðeins jafn-
rétti, hann krefst jafnréttis. Þegar við
gefum eftir, hvort sem það eru konur
eða karlar, og leitumst ekki við að lifa í
jafnrétti, þá erum við að óhlýðnast
Kristi.
Heiðin heimspeki
Hvað eigum við þá að segja um orð
Páls postula, orðin um að konur eigi að
vera undirgefnar eiginmönnum sínum
og verði hólpnar vegna barnsfæðingar-
innar og að konur eigi að þegja á safn-
aðarsamkomum?
Þetta hefur verið túlkað sem boð um
undirgefni kvenna. En það er röng
túlkun, segir kvennaguðfræðin. Þessi
túlkun byggir á því að öðrum orðum
Páls er haldið leyndum, orðum eins og
þeim að í Kristi sé enginn munur á
rétti karla og kvenna, orðum eins og
þeim að konur bæði prédikuðu og
kenndu guðfræði í nánustu samvinnu
við Pál. Því er þá haldið leyndu að Páll
var sjálfur undir áhrifum grísku heim-
spekinnar, sem hann var alinn upp í
námunda við í Tarsus. Þar voru konur
lítils metnar og það mat mótaði síðar
marga kirkjufeðurna, elstu guðfræð-
inga kirkjunnar, sem hafa haft áhrif á
stöðu kvenna allt fram til okkar daga.
Því spyr kvennaguðfræðin: Hvernig
má dirfast að meta heiðna heimspeki
meira en orð Drottins okkar?
Orðaval
Ég lýk nú þessum orðum mínum
með því að segja að kvennaguðfræðin
leggur djúpa áherslu á orðaval. Hún
hvetur til þess að nota ekki orð, sem
eiga aðeins við karlmenn, þegar bæði
er talað um konur og karla. Hún hvet-
ur konur til samstarfs, til að hjálpa
hver annarri til að njóta þes, sem Ritn-
ingin býður þeim afgleði og friði. Hún
hvetur þær til að leita nýrra leiða í bæn
og söng, nýrra leiða í guðþjónustunni
og daglegu lífi.
okkur hefur verið kenndur, reyna að
sjá hvað stendur þar raunverulega.
Ég tek kaflann um Mörtu og Maríu
sem dæmi. Um áratugaskeið hef ég
lesið þcnnan kafla. Ég hef lesið hann
aftur og aftur af því að mér þykir vænt
um hann eins og okkur þykir svo mörg-
um. Ég hef ævinlega lesið hann með
þeim skilningi að María hafi fengið að
sitja kyrr við fætur Jesú vegna þess að
hún mat það meira að hlusta á orð
hans en vera að stússast í tilgangslausu
dugnaðarofforsi frammi í eldhúsi.
Allt í einu sá ég svo fyrir hvatningu
kvennaguðfræðinnar að þarna stendur
raunverulega líka að María sat í læri-
sveinssæti við fætur Jesú. Hún hlustaði
á Jesú innan um karlmenn í stað þess
að vinna hefðbundin kvennastörf.
Hún var lærisveinn. Jésús gerði hana
jafna karlmönnunum, sem fylgdu
honum, og það var óþekkt á þeim tím-
um. Hafi Jesús viljað hafa þetta svona
þá vill hann áreiðanlega hafa það svo.
Annað dæmi sjáum við í sköpunar-
sögunni.
Því var og er haldið fram innan
kirkju og utan, eins og við allar vitum,
að Biblían boði undirgefni og undir-
okun kvenna, skaparinn haíi sjálfur
sagt að með kvöl skyldi konan fæða
börn sín og vera undir yfirráðum
manns síns.
Kvennaguðfræðin segir:
Það er ekki satt að Biblían boði undir-
gefni eða undirokun kvenna. Hún skýr-
ir Jrá undirokun kvenna, sem var stað-
reynd í þjóðfélagi, sem var byggt á því
að ættf'eðurnir réðu. Hún skýrir frá því
að konan var vissulega oft nær einskis
metin. En það var ekki boð Guðs.
Fjarri fer því. Þegar skaparinn sagði að
konan skyldi með kvöl ala börn sín og
maður hennar drottna yfir hennar var
það eftir syndafallið. Allt var komið á
ringulreið vegna þess að mennirnir
höíðu snúið sér frá Guði. Því fór sem
fór í samskiptum Adams og Evu. En
það var ekki Drottinn, sem gaf Adam
yfirráð yfir Evu. Þegar hann skapaði
þau skapaði hann þau jöí'n og gaf þeim
sömu verkefni til að vinna að saman,
þau áttu að yrkja jörðina og ala upp
börn sín.
Framhald aj bls. 58
Ég mundi að einu sinni hafði hún sagt
við mig þegar ég kom í heimsókn til
hennar:
- Ég er búin að biðja heimilisfólkið
hérna um frí eina nótt. Og þau fóru að
hlæja og sögðu: Hvað ætlar þú að gera
við frí? Ég ætla að taka sængina mína
og koddann minn og fara út og finna
mér hlöðu með angandi heyi og sofa
þangað til ég er afsyfjuð, - og svo hló
hún og eyddi þessu á sinn venjulega
káta og áreynslulausa hátt.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar ég
horfði á hana í lautinni. Hún hafði
fundið sér stað til að sofa þangað til
hún yrði afsyíjuð.