Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 8

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 8
230 að geta aukið á viðhöfn þeirrar minningar með kvæðinu, sem hér er birt að framan, einkum fyrir þá sök, að ekk- ert af stórskáldum þjóðar vorrar hefir hingað til, svo vér vitum, fundið hjá sér hvöt til að yrkja ljóð um þennan konung íslenzkra ræðumanna. Stutt ritgjörð um Jón Vídalín, með útdrætti úr prédikun eftir hann, er birt á öðrum stað í þessu blaði. Hér verður stuttlega skýrt frá æfiferli hans og einkennum. Jón Þorkelsson Vídalín var fæddur í Görðum á Álfta- nesi, 21. dag marzmánaðar 1666—rúmum átta árum fyr- ir dauða Hallgríms Péturssonar. Paðir Jóns var Þor- kell Arngrímsson, prestur þar í Görðum, sonur Arngríms prests Jónssonar “lærða”—manns þess, er einna fræg- astur hefir orðið íslenzkra rithöfunda. á síðari öldum og fyrstur vakti eftirtekt, erlendis, á sögu og bókmentum Is- lendinga. Var því Jón biskup vel að gáfum sínum kominn. Móðir Jóns var Margrét Þorsteinsdóttir, kona séra Þorkels. Um ætt liennar er ekki getið í heimildum þeim, sem fyrir liendi eru. Ellefu ára gamall misti Jón föður sinn. Efnin voru lítil, sem móðir hans átti, og liorfðist því ekki vel á fyrir honum í bernsku um skólanám. En snemma mun hafa borið á góðum námsgáfum hjá honum, því að vinir og ættingjar geng-u í það, að koma honum til menta. Komst hann í Skálholtsskóla og útskrifaðist þaðan eftir þriggja ára nám. Síðan hélt hann áfram námi í tvo vetur hjá prestum tveim, frændum sínum, Oddi Eyjólfssyni og Áraa Þorvarðssvni, sem báðir voru hálærðir menn. Hafði hann ofan af fyrir sér á þeim ár- um við sjóróðra í Vestmannaeyjum. Eftir það komst Jón með tilstyrk frænda sinna á Kaupmannahafnar- háskóla; byrjaði þar nám árið 1687, og lauk prófi að tveim árum liðnum með ágætum vitnisburði, bæði í guð- fræði og heimspeki. Sama ár gekk hann í her Dana og var tvö ár í herþjónustu, en komst lítt áfram. Var hann að lokum keyptur úr hernum og fór til íslands skömmu síðar. Haustið 1691 fór hann í veturvist, kauplaust, til

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.