Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1920, Page 17

Sameiningin - 01.09.1920, Page 17
239 konu sína eða rekur h.ana frá sér, eða konan hleypur frá manninum. Þessi síðari ritningarstaður þarf fremur athugunar við en sá fyrri. Postulinn er að leggja lífsreglur giftu fólki í Korintuborg. Kristnum hjónum segir 'hann, að þau eigi að halda saman og skilja ekki; ef annað hjónanna sé kristið, en hitt ekki, þá megi ekki kristni aðilinn af þeirri ástæðu rjúfa hjúskapartrygðina. En ef ókristni maður- inn sækir um skilnað frá kristinni konu, eða yfirgefur liana, þá sé öðru máli að gegna, þá sé bezt að taka skiln- aðinn til greina, og haga sér þar eftir. Orð postulans liljóða svo: “En ef hinn vantrúaði vill skilja, þá fái hann skilnað (eða: ‘ef hinn vantrúaði fer frá henni, þá fari hann leiðar sinnar’); því að livorki bróðir eða systir eru þrælbundin í slíkum efnum.” Þrælbundin við hvaðf Það er óhugsandi, að postulinn eigi ekki við annað en það, að kristin kona .sé ekki skyldug til að elta á röndum heiðinn mann, sem við liana hefir skilið, og þýðist ekki sambúð hennar. Það hefði verið fremur barnaleg fyrir- skipun um sjálfsagðan hlut. Hitt hlýtur því að vera meiningin, að þegar svo standa sakir, sé saklaus maður eða kona laus undan þrældómi við rofinn sáttmála — sé, með öðrum orðum, frjáls við hjúskaparheitið og megi ganga í annað hjónaband. Hér er því, eftir þessum skilningi, gjörð grein fyrir réttmætri skilnaðasök, sem fólgin er á því, að annar aðili yfirgefur liinn, — eða rekur frá sér, — af illum hug og til langframa. í fljótu bragði mætti virðast svo, sem þessi orð Páls kæmi í ibága við kenning frelsarans, sem bannar hjóna- skilnað og nefnir enga nndntekning nema hórdóm. En sú mótsögn liggur að eins í bókstafnum. 1 báðum sök- unum liggur sama syndin, nefnilega trygðarof svo stór- vægilegt, að það slítur sjálft hjartað úr hjúskapar-sátt- máíanum og gjörir hann dauðan og ómerkan. Þetta var kenning Lúters og hlaut hún alment fylgi lúterskra guðfræðinga fram á síðustu öld. En sumir vildu bæta öðrum sökum við þessar tvær, sem Lúter hafði bent á. Melankton var þar efstur á blaði. Hann taldi með réttmætum skilnaðarsökum banaráð og óþolandi grimd eða harðneskju, af því að sama ótrygðin lægi í

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.