Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1920, Page 20

Sameiningin - 01.09.1920, Page 20
242 tiltóku, Lúter og- Melankton. Um það skal ekki dæmt liér, hvort áminst ummæli þessara háttvirtu bræðra vorra eigi hvortveggju að skiljast á einn veg — hvort þeim komi saman að öllu leyti. En hitt er aðgæzluvert, að þá skortir báða þann myndugleika, sem við þarf, til þess að orð þeirra geti fastákveðið nokkuð um stefnu kirkjufélagsins í þessum efnum, eða heimtað hlýðni. tír- skurðarvaldið liggur auðvitað hjá félaginu sjálfu, fyrst heimildum kemur hér ekki að öllu leyti saman um rétt- an skilning á Guðs orði. Yerður því það, sem sagt hefir veið um það efni hér í blaðinu, að skoðast sem bendingar fremur en lagaboð að svo stöddu. Hér er því ekki nema eitt fyrir hendi, ef vér viljum sjiorna við hættu þeirri, sem vofir yfir hjúskaparhelginni hér í landinu. Yér verðum í einlægni hjartans að íhuga mál þetta í ljósi Guðs orðs og lúterskra kenninga, og ráða við oss, hvar vér eigum að standa. Víkja svo ekki frá þeim grundvelli, sem vér vitum réttastan. En í þessu verður að rata rétt meðalhóf; óþarfur strangleiki er eng- in dygð; hann er jafn-skaðlegur afslættinum, þegar hvorugt er bygt á Guðs orði. Það er illa gjört, að stofna andlegri velferð og siðgæði þjóðanna í hættu með tilláts- semi við dutlunga holdsins. En liitt er líka viðsjárvert, að beita óboðinni hörku við saklaust fólk. Sá sem þetta ritar, fellir sig bezt við iskilning Lfiters á þessu máli, og telur því réttast, að marka þeim sökum ekki þrengri bás en hann gjörði. Viðbót Melanktons gæti átt rétt á sér í vissum tilfellum. en gallinn er sá, að ef henni er einu sinni slegið fastri, þá má smeygja þar inn alls konar sakargiftum og átyllum, sem aldrei verður séð fyrir end- ann á og koma algjörlega í bága við anda jafnt sem bók- staf ritningar-orðsins. Sjálfsagt er að forðast þær ó- göngur. En að lenda í liinum öfgunum og ætla sér að verða lúterskari en Lúter og betur kristinn en Páll post- uli, í hjónaskilnaðar-sökum — það situr víst ekki sem bezt á nokkrum manni vor á meðal. Megum víst heita góðir, ef vér náum þangað með tærnar, sem þeir höfðu hælana, í heilagleik og í trúmensku við kenningar frels- arans. Og svo megum vér aldrei glevma því, að það er ekki

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.