Búfræðingurinn - 01.10.1951, Blaðsíða 142
140
BÚFRÆÐINGURINN
búnir að ná meiri tökum á sínum verðlagsmálum en bændur
annarra þjóða. Það getur unnið stórvirki í framtíðinni, ef vel
er á málum lialdið, og auðna og drengskapur ráða.
En jafnframt því sem bóndinn gerir kröfur til bættrar af-
komu, verður liann einnig, og fyrst og fremst, að gera kröfur til
sín sjálfs. — Það er verkefni bændanna að vinna meira fjár-
magn inn í landbúnaðinn, og það er líka verkefni þeirra að
umskapa svo íslenzkan sveitabúskap, að hann verði eftirsóknar-
verður og eftirsóttur. Að þar megi líta þétt býli, á víðáttumikl-
um vallgrónum löndum, þar sem góðar hjarðir og traustar
tryggi afkomuna. Bóndinn þarf að gera sínar áætlanir. Hann
þarf að gefa sér tíma til að hugsa. Hann þarf engan að spyrja
leyfis. Hann er frjáls í sínu staríi, frelsið glæðir athafnaviljann
og gefur orkunni byr undir vængi. — Ég þekkti bónda fyrir B0
árum, sem var athafnamaður á þeirra tíma mælikvarða. Hann
tók sér það fyrir hendur að slétta eina dagsláttu á ári í túninu
sínu, og framkvæmdi það. Þetta tún ber enn minjar þessa
starfsama manns.
Ef það, að slétta dagsláttu á ári, með handverkfærum einum,
er margfaldað með tækni nútímans, og það framkvæmt á hverju
býli á landinu næstu 10 árin, mundu sveitir landsins skipta um
sældir og svip. — Það eru víðsýnir athafnamenn, sem landbún-
aðurinn þarf að eignast. Menn, sem finna gleði í því að líta yfir
óleyst verkefni, og hafa dug til þess að hætta miklu þeim til
úrlausnar. — Því fé, sem varið er til landbúnaðarins, er ekki
á glæ kastað. Bóndinn leggur lé sitt í umbætur, liann er skap-
andi máttur, sem eykur þjóðarauðinn með hverjum hektara,
sem hann ræktar, og hverju varanlegu húsi, sem byggt er. Auk
þess, sem landbúnaðurinn leggur til aðalfæðu þjóðarinnar, er
hann hollasta uppeldisstöð æskunnar, eins og margsinnis hefur
verið bent á. En bændurnir eru of fáir, búin eru of lítil, túnin
of lítil og taðan of lítil. — Bændurnir eru of hirðulausir um bú-
stofninn, þeir vita margir hverjir ekki, hvernig gripirnir eru,
sem þeir hafa undir höndum. Búreikningarnir eru hverfandi
fáir, svo að nauðsynlegt er að bæta þar um þegar í stað. Stéttar-
samband bænda byggir sinn verðgrundvöll á upplýsingum, sem
það aflar sér í gegnum skattframtöl bænda og aðrar ábyggilegar