Búfræðingurinn - 01.10.1951, Síða 149
li Ú I RÆBINGURIN N
147
um við gróðursetningu á þessurn stað, enda dreymir marga um
að hann verði þegar stundir líða, ánægjulegur dvalarstaður og
aðlaðandi fyrir bæjarbúa.
1937—1938 var svo ráðizt í það, að friða einu skógarleifamar
í héraðinu, sem nokkuð voru áberandi, skógarleifarnar í Leyn-
ingshólum. Er girðingin um hið friðaða land um 3 km. að
lengd. Land þetta var orðið í mikilli hættu vegna uppblásturs,
og auk þess hafði það verið undir stöðugum ágangi búfjárins.
Erfitt hefur reynzt að verja þetta skóglendi fyrir sauðfénu, en
miklum stakkaskiptum hefur skógurinn ]aó tekið síðan hann
var friðaður, og nýgræðingur hefur skotið upp kollinum, jafn-
vel tipp úr hörðum melhólunum. Ef það tækist að auka og bæta
trjágróðurinn á þessum einkennilega stað, og einkum ef þar
yxu upp barrviðir í skjóli birkisins, þegar frant líða stundir,
þá myndi hann koma til með að hafa verulegt aðdráttarafl og
án efa verða eftirsóttur af fleirum en þeim, er næst ltonum
búa.
1941 lét félagið girða kringum dálitlar skógarleifar í Kóngs-
staðahálsi í Skíðadal, sem gengur inn úr Svarfaðardal. Þar var
að vísu mjög strjáll birkigróður, en þó nokkrir runnar um og
yfir tveggja metra hæð. Þar hefur einnig verið plantað nokkru
af birki og barrplöntum.
1942 tók félagið við afgirtum reit í brekkunni suð-austur af
Akureyrarkirkju. Var þar áður byrjað á gróðursetningu, og
hefur félagið lialdið áfram að gróðursetja þar og haft umsjón
með brekkunni síðan. Sama ár fékk félagið umráðarétt yfir
eyðibýlinu Miðhálsstöðum í Öxnadal. Þar höfðu fundizt leifar
af birkikjarri og var ætlunin að friða ]rar land til skóggræðslu,
en framkvæmdir strönduðu á fyrsta ári og hafa ekki verið tekn-
ar upp aftur enn sem komið er. Það land er nú á vegum Skóg-
ræktar ríkisins.
1946 um haustið var loks hafizt handa með undirbúning að
uppeldisstöð fyrir trjáplöntur. Land það, sem endanlega var
tekið fyrir uppeldisstöðina var fengið á eriðafestu hjá Akur-
eyrarbæ og liggur sunnan við bæinn í landi eyðibýlisins Kjarna.
Næsta vor var byrjað að sá og gróðursetja í uppeldisreit og síð-
astliðið vor var byrjað á plöntusölu þaðan. Fátt eitt er ennþá
10*