Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2001, Blaðsíða 39

Frjáls verslun - 01.09.2001, Blaðsíða 39
YFIRTAKAN fl KEFLAVÍKURVERKTÖKUM milljónir. Eigið fé var því 1.424 milljónir og eiginijárhlutfall um 72% sem er með því allra hæsta sem þekkist í atvinnulíf- inu. Og eins og áður hefur komið fram; veðskuldir eru aðeins 11,2 milljónir! Sagt og staðið! Vaxtatekjur félagsins eru meiri en vaxtagjöld. Hreinar íjármunatekjur fyrstu sex mánuði þessa árs voru ríflega 10 milljónir. A þessum bæ vita menn ekki hvað gengistap vegna erlendra skulda er. Það er eitthvað sem þeir heyra og lesa um i ijölmiðlum að valdi taprekstri víða annars staðar. Félagið hagnaðist um 101 milljón eftir skatta á síðasta ári og um 120 milljónir eftir skatta fyrstu sex mánuði þessa árs. Bjarni lét til skarar skríða um mitt sumar Það var um mitt sum- ar sem Bjarni lét til skarar skríða og hóf markviss kaup á bréf- um í Keflavíkurverktökum. Frá byrjun þurfti engan speking til að sjá hvað um var að ræða; það var aðeins eitt á döfinni, yfir- taka á félaginu. Það kristallaðist svo á hluthafafundinum á veit- ingastaðnum Ránni í Keflavík 5. október sl. að hann var búinn að ná meirihluta í félaginu, kominn með hlut upp á 50,3%. A þessum hluthafafundi áttu flestir von á löngum fundi og reikn- að var með að styðjast þyrfti við margfeldiskosningu við stjórn- arkjör. Loft var vissulega lævi blandið á fundinum, en hann varð stuttur og engin átök urðu um stjórnarkjörið. Þeir sem buðu sig fram til stjórnar voru sjálfkjörnir. Bjarni fékk eðlilega meirihluta í stjórn, þijá menn á móti tveimur minnihlutans. Hann var síðan kjörinn stjórnarformaður félagsins. Fulltrúar hans tveir, sem kjörnir voru í stjórnina, voru þeir Sigurmar K. Albertsson lögmaður og Kristinn Bjarnason lögmaður. Af hálfu minnihlutans voru Guðrún S. Jakobsdóttir, fráfarandi stjórnarformaður, og Birgir Guðnason málarameistari kjörin í stjórn. Þau Guðrún og Birgir munu síðan missa sæti sín í stjórninni á hluthafafundinum 9. nóvember. Langlíklegast er að Páll Olafsson, faðir Bjarna, og Stefán Hilmarsson, mágur hans, taki sæti þeirra. Þess má geta að Guðrún er dóttir Jakobs Arnasonar sem var stærsti einstaki hluthafinn í fyrirtækinu áður en Bjarni kom að því, með rúm 11% hlut. Núna á Jakob Arnason um 9,3% og börn hans fimm um 1,1%. Birgir Guðna- son málarameistari á 0,14%. Vitað er að Jakob vildi selja ef feng- ist hefði hærra verð fyrir bréfin. „Þeír hreinlega djöfluðust í okhur“ Afar lítil viðskipti voru með bréf í Keflavíkurverktökum eftir að þeir voru skráðir á til- boðsmarkað Verðbréfaþings 15. maí sl. Einhver viðskipti voru á genginu 3,20. En síðan gerðist það snemma sumars að Sig- urður Guðni Jónsson, fyrrverandi apótekari í Austurbæjarapó- teki, keypti frekar óvænt 8,1% hlut Braga Pálssonar, stjórnar- formanns Keflavíkurverktaka. En Sigurður Guðni átti áður hlut í Lytjaverslun Islands sem hann hafði selt. Það var félag hans í Lúxemborg sem keypti hlutinn af Braga, hlut sem var að nafnverði um 25,6 milljónir. Gengi bréfanna í þessum viðskipt- um var 4,3 og var söluverðið því um 110 milljónir króna. Sagt er að með kaupum Sigurðar Guðna hafi teningnum verið kastað og Bjarni og Kaupþing hafi byijað af fullum krafti. Full- yrt er að gífurleg eftirfylgni hafi verið hjá Kaupþingi í þessu máli og fulltrúar þess sett sig í samband við alla hluthafa, bók- staflega kembt hluthafaskrána. Einn hluthafinn orðar það svo: „Þeir hreinlega djöfluðust í okkur, hringdu og hringdu." Marg- ir hluthafa, flestir smáir, seldu hlut sinn í sumar og voru, að því er virtist, sæmilega sáttir við verðið. Það var svo í ágúst sem ljóst varð að félag Bjarna, Eisch Holding S.A., hafði eignast 30 til 40% hlut. Á haustdögum keypti Bjarni síðan hlutinn af Sig- urði Guðna. Skömmu síðar var hann kominn með meirihluta í félaginu, 50,3%. Hart fram gengið í yfirtökutilboðinu í aðdraganda þess að Kefla- víkurverktakar voru skráðir á Verðbréfaþing sl. vor veltu ýmsir hluthafar því fyrir sér hvert gengi bréfanna ætti að vera. Margir töldu þá að gengið 4,2 - sem var í takt við bókfært eigið fé félags- ins - væri ásættanlegt og kváðust ánægðir fengju þeir það. I yf- irtökutilboðinu bauðst Bjarni til að kaupa bréfin á genginu 4,6. Fullyrt er að hann hafi nánast sama dag og tilboðið var lagt fram verið kominn á fullt skrið við að sannfæra hluthafa í minnihlut- anum um að þeir ættu að selja honum. Ýmsum, sem hafa raun- ar selt honum bréf sín, finnst hann hafa verið of gírugur og telja að hann hall verið á mörkunum því hann hafi notað orðalag eins og að seljanleiki bréfa í minnihluta yrði mjög lítill síðar; hann væri kominn í meirihluta, réði ferðinni í félaginu og hagstæðast væri fyrir viðkomandi að selja strax - því síðar yrði það ekki auð- velt. Vissulega var þetta svo sem nákvæmlega það sem hluthaf- arnir voru að hugsa, en þeim fannst þetta býsna mikil ýtni. Eft- ir að Bjarni var kominn með meirihlutann í félaginu var einfald- lega of seint fyrir einhveija aðra hluthafa að ætla sér að beijast gegn yfirtöku hans og vera í einhverri eyðimerkurgöngu. Það var ekki nema um tvennt að velja, selja eða vera áfram í minnihluta og treysta á að Bjarni haldi áfram að ávaxta eignina, gera markaðsverð Keflavíkurverktaka enn meira. Réttur smárra hlutafa Hér erum við að vísu komin inn á afar klassískt og athyglisvert mál sem snertir Keflavíkurverktaka ekkert sérstaklega; þ.e. mátt smárra hluthafa í fyrirtæki þar sem einn hluthafi er í meirihluta og ræður fyrirtækinu alger- lega. Spurningin er þessi sem hver og einn verður að svara fyr- ir sig: Er auðvelt að selja t.d. 2% hlut í fyrirtæki sem að mestu er í eigu eins manns og ekki er skráð á hlutabréfamarkaði? Flest- ir telja eflaust ekki svo vera. En hvers vegna þá ekki að vera far- þegi í aftursætinu og láta þann sem er í meirihluta í fyrirtækinu ávaxta fé sitt? Fara ekki hagsmunir stóra hluthafans og þess smáa saman? Er í raun til eitthvað sem heitir meirihluti og minnihluti í hlutafélögum? Vinna stjórnir hlutafélaga ekki fyrir alla hluthafana? Er ekki meira í húfi fyrir þann stóra en smáa að félagið verði sem verðmætast? Og á það að skipta máli þótt sá stóri ákveði að greiða sér út mikinn arð í félaginu því sá smái fær líka sinn arðshlut um leið? Á að skipta máli þótt hann sam- eini fyrirtækið öðru fyrirtæki, eins og margir halda að verði raunin hjá Keflavikurverktökum? Hversu margar sem spurn- ingarnar um þetta atriði verða er eitt víst; seljanleiki bréfa í skráðum félögum á markaði hlýtur alla jafnan að vera meiri en í óskráðum. Bréf í óskráðum félögum geta hins vegar verið mjög seljanleg ef fyrirtækin hagnast vel, eru vel rekin, ijárhags- lega sterk og kaupendur treysta þeim sem eiga bróðurpartinn í þeim og stýra þeim til að gera hlut þeirra verðmætari. Núna hafa 30 hluthafar í Keflavíkurverktökum, sem eiga 14% hlut og fá engu ráðið um hvert för stefnir, ákveðið að „vera farþegar í aftursætinu" hjá Bjarna og treysta einungis á að hann geri hlut þeirra verðmætari. Ef ótti manna um himinháar arðgreiðslur út úr félaginu er á rökum reistur þá munu þijátíu- menningarnir fá hlutfallslega jafnmikið greitt til sín og Bjarni. Það verður spennandi að fylgjast með framvindu mála suður með sjó og hvaða „bændaglímu" hinn 29 ára bóndasonur ofan af Kjalarnesi ætlar að beita.lE 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.