Frjáls verslun - 01.09.2001, Blaðsíða 87
f
mr% i j
Arni Kristinsson yfirlœknir á hjartadeild Landspítala: „Hitt er svo annað mál að aðeins lítill hluti þeirra sem hafa hœkkaðan blóðþrýsting fá
einhver hjartaáfóll ogþví er meðhöndlun vegna hans dýr. “ FV-mynd: Geir Ólafsson
höndlun vegna hans dýr. Verið er að gefa öllum dýr lyf en í
raun væri miklu betra ef hægt væri að finna þá sem hafa
erfðamengi sem gerir að verkum að hækkaður þrýstingur
veldur frekari sjúkdómum og ekki væri verra ef lyfin væru þá
við hæfi hvers og eins en það er vonandi eitthvað sem fram-
tíðin ber í skauti sér.“
flð springa úr harmi Árni segir streitu koma mikið við sögu
varðandi áföll og nefnir alþekktar sögur um fólk sem sprungið
hafi af harmi. „Við álag eykst magn streituhormóna og þá er
hægt að mæla en við vitum ekki nóg um áhrifin. Þeir sem eru
útsettir fyrir hjartaáföll, þ.e. erfðafræðilega séð, eru auðvitað í
meiri hættu en hinir þegar þannig stendur á. Rannsóknir hafa
sýnt að fólk sem vinnur undir miklu álagi en hefur lítið um það
að segja hvernig starfið er unnið er stressaðast og í mestri
hættu varðandi áföll. Komi inn í það þættir eins og reykingar,
of mikil þyngd, sykursýki, hóglífi og hátt kóleseterol er við-
komandi í miklum áhættuflokki og þarf að breyta verulega til.“
Fjölþjóðleg rannsúkn Víða er hægt að kaupa blóðþrýstings-
mæla og segir Árni þá flesta nokkuð áreiðanlega. „Sumir mæla
heldur hærra en okkar mælar en það er þó betra en að þeir gefi
upp óeðlilega lág gildi,“ segir hann. „Margir koma með mæl-
ana hingað og bera saman við okkar mæla og nota þá svo til að
fylgjast með blóðþrýstingnum heima við sem er auðvitað besta
mál.“ Blóðþrýstingur fullorðins fólks má helst ekki vera yfir
140/90 ef vel á að vera og auðvitað æskilegast að hann sé að-
eins lægri en þvi miður er það ekki algengt á vesturlöndum.
Hjartavernd hefur frá árinu 1981 tekið þátt í Ijölþjóðlegri rann-
sókn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í hjarta- og æðasjúk-
dómum, svokallaðri MONICA-rannsókn. Henni er ætlað að
leiða í Ijós áhrif ýmissa áhættuþátta á tíðni hjarta- og æðasjúk-
dóma (kransæðastíflu og slags) svo unnt sé að að beita for-
vörnum á árangursríkari hátt en verið hefur. Hún nær til 12
milljón manna og er langstærsta faraldsfræðilega rannsóknin
sem gerð hefur verið til þessa. ísland hefur þá sérstöðu að
rannsóknin nær til heillar þjóðar en í öðrum löndum er hún
bundin við sérstök landsvæði eða borgir.
Róleg megrun best Árni er spurður að því hvernig best er að
fylgjast með heilsunni og vinna að bættri heilsu. „Ef við tökum
manneskju sem komin er yfir fertugt þarf að mæla blóðþrýst-
ing og kólesterol. Síðan vikta viðkomandi og sé hann of þung-
ur þarf að vinna að því að hann grennist. Þó ekki með neinum
látum því reynslan hefur sýnt að hæg megrun, um það bil 250-
300 g á viku reynist best og er í raun eina megrunin sem virk-
ar. Eg myndi ráðleggja röska hreyfingu að minnsta kosti
tvisvar í viku, um 20 mín. í senn, og mæli með gönguferðum
eða sundi sem er bæði ódýrt og gott. Og auðvitað að reykja
ekki, það er grundvallaratriði ef fólk vill halda heilsu." 33
„Ég myndi ráðleggja röska hreyfingu að minnsta kosti tvisvar í viku, um 20
mín. í senn og mæli með gönguferðum eða sundi sem er bæði ódýrt og gott.
Og auðvitað að reykja ekki, það er grundvallaratriði ef fólk vill halda heilsu.“
87