Frjáls verslun - 01.09.2001, Blaðsíða 52
MISiyiUNANDI STJÓBNUNARSTÍLAR
titfbssr-t^jtpioaroj
■*»*•!* Ts-arcai
ifísipacíBar^
ít Stáiá iatoíip aofraí s alSigrti csái 5J*5
Hlutverk stjúrnandans að stýra og styðja Hægt
er að skipta stjórnunarsviði stjórníindans í
tvennt. Annars vegar er hlutverk hans að
skipuleggja verkið sem verið er að vinna.
Stjórnandinn segir starfsmönnum hvað þeir
eigi að gera og hvernig og gengur síðan úr
skugga um að vinnan hafi verið unnin rétt
Hann beinir þannig athyglinni að verkefninu,
sér til þess að starfsmenn hans framkvæmi
verkin samkvæmt hans fyrirmælum. Hann
leggur áherslu á verkin sem verið er að vinna.
Þetta köllum við verkefnabundna stjórnun.
Sljórnandinn stýrir starfsmönnum sínum.
Hins vegar er hlutverk stjórnanda að efla
starfsmenn, örva þá og hvetja til vinnu. Stjórn-
andinn hvetur til gagnkvæmra samskipta,
Sumir stjórnendur eru afar stjórnsamir og beita
mikilli stýringu i stjórnun sinni á meban abrir
dreifa miklu valdi, skipta sér lítib af- ab pví er
virbist - og beita fyrst og fremst hvatningu og eftir-
jýlgni. En pab er ekki allt sem sýnist. Fyrst og fremst
parfab beita stjórnunarstíl sem hæfir abstæbum!
Eftir Ingrid Kuhlman Myndin Geir Olafsson
Stjórnun er lykilþáttur í hverju fyrirtæki. Vel rekið fyrirtæki
þýðir í raun ekkert annað en að þeir sem eru við stjórnvöl-
inn stjórni vel. Góð stjórn fyrir félög, fyrirtæki, fyrirtækja-
samsteypur og þjóðfélög er gríðarlega mikilvæg. Stjórnun er að
hafa áhrif á fólk og aðstæður í þeim tilgangi að koma af stað
breytingum eða umbótum til að ná settum markmiðum.
Innan fyrirtækisins hefur stjórnandi viðurkennt valdsvið
vegna þess að hann er í hærri stöðu en starfsmenn hans.
Þetta köllum við formlega stjórnun. Stjórnandi getur einnig
haft vald vegna þess að starfsmenn hans hafa trú á honum og
vilja að hann sé við stjórn. Viðkomandi þarf þá ekki að vera í
formlegri stjórnunarstöðu. Þetta er kölluð óformleg stjórnun.
Til að stjórnun innan fyrirtækisins verði skilvirk verður stjórn-
andinn að hafa formlegt vald auk þess sem starfsmenn hans
verða að viðurkenna vald hans. Stjórnanda ber að
haga sér þannig að hann sé ekki aðeins form-
legur stjórnandi heldur einnig viðurkenndur
stjórnandi. En það eitt og sér er ekki nóg.
Þekking á stjórnun og stjórnunaraðstæðum er
mikilvæg. Til að ná árangri verður stjórnand-
inn að geta uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru
við mismunandi aðstæður.
Fjöldi kenninga er til um áhrifaríka
stjórnun. Ein lifseigasta þeirra er kenningin
um aðstæðubundna stjórnun eftir Hersey &
Blanchard frá árinu 1969 en hún er notuð í
stjórnendaþjálfun um allan heim. Styrkleiki
kenningarinnar liggur í einfaldleikanum og
áherslunni sem lögð er á hlutverk náms. Sam-
kvæmt kenningunni hafa aðstæður stjórnanda
og starfsmanns áhrif á hvaða stjórnunarstíl sé
best að beita. Hlutverk stjórnandans sam-
kvæmt kenningunni er að stuðla að þroska
einstaklingsins.
Bókin Situational Leaders sem fjallar um aðstæðubundna stjórnun. Styrkleiki kenning-
arinnar liggur í einfaldleikanum og áherslunni sem lögð er á hlutverk náms.
FV-mynd: Geir Olajsson.
Increase your productivity and profrt
through Anœrica's most influential
leadership program,
used by over one million managers
inmorethan
five hundred top companies.
52