Frjáls verslun - 01.09.2001, Page 62
Sœlgæti, sérstaklega popp og kók, þykir mörgum ómissandi í bíó oggróflega áœtlað má segja ad hver bíógestur eyði 250 krónum í sœlgœti. Sœl-
gætissalan gefur því um 400 milljónir króna í tekjur í heildina á ári.
er að Sambíóin fjárfesti fyrir allt að einn milljarð króna á fáum árum
kvikmyndahúsið í Grafarvogi verður að veruleika. Samkvæmt heimildum Frjálsrar
verslunar kostuðu framkvæmdirnar í Sambíóunum Álfabakka 100 milljónir í allt.
Century Fox, MGM, Miramax og ýmis smærri umboð frá
sjálfstæðum aðilum. Sambíóin eru með Disney, Warner,
Summit, Intermedia, Morgan Creek, Initial Entertainment
auk UIP (ásamt Háskólabíói og Laugarásbíói), en það fyrir-
tæki dreifir myndum frá Paramount, Universal og
Dreamworks. Myndbandaumboðin eru Disney, Warner,
Paramount, Universal, Dreamworks auk smærri aðila. Mynd-
form, sem á og rekur Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri á
móti Norðurljósum og Háskólabíói auk myndbandaleiga,
er með umboð fyrir Newline Cinema, Revolution Studios,
Spyglass Entertainment, UIP (í samvinnu við Háskóla-
bíó og Sambíóin), Alliance Atlantis, MDP Worldwide,
Myriad Pictures, Svensk filmindustri og Scanbox
Entertainment. Háskólabíó er með UIP (ásamt Sambíó-
unum og Laugarásbíói), Lakeshore, Sandrews
Metronome og fleiri minni umboð. Háskólabíó hefur
sterka stöðu í sýningu á íslenskum myndum og listræn-
um erlendum myndum. Bíóið hefur sýnt allar myndirn-
ar frá Kvikmyndasamsteypunni og reyndar hafa allar
aðrar íslenskar myndir verið þar til sýninga nema ís-
lenski draumurinn.
Bíómarkaðurinn er traustur, eins og áður segir, og hann er
heldur á uppleið ef eitthvað er. Vonir standa til að næsta ár
verði gott bíóár, eins og næstu stórmyndir, Harry Potter og
Hringadróttinssaga, bera með sér. Það er jú grundvallaratriði
að hafa góðar myndir til sýninga. Höfuðborgarsvæðið fer
stöðugt stækkandi og kvikmyndahúsin hafa fært sig til fólksins
í verslanamiðstöðvunum og jafnvel í úthverfunum. Breytingin
á sýningartímanum tókst vel og samvinna við
myndbandaleigurnar hefur gengið vel.
Tekjuhliðin virðist þvi líta ágætlega út þó
að stórar fjárfestingar bíði. BH