Frjáls verslun - 01.09.2001, Page 64
VlDTjfrSTEINÞÓR BJARNASON í CISCO_
Isfirðingurinn hjá
Cisco Systems
Steinþór Bjarnason, tœknisérfrœðingur hjá Cisco
Systems, hefur sérhœft sig íþráðlausum netsímum og
öryggismálum. Hann hefurstarfað í rúmlega eitt ár
hjá Cisco og hefur þegar verið kjörinn tæknimaður
ársins í Noregi og tæknimaður ársins i Norður-Evróþu.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Olafsson
W
Isfirðmgurinn Steinþór Bjarnason hefur starf-
að hjá alþjóðlega stórfyrirtækinu Cisco
Systems í Noregi í rúmlega eitt ár. Stein-
þór er tölvunarfræðingur að mennt frá
Háskóla Islands og starfar sem tæknisér-
fræðingur, sérhæfir sig í þráðlausum net-
símum og öryggi netkerfa í fyrirtækjadeild
Cisco. Starf hans snýst fyrst og fremst um
að sinna meðalstórum og stórum fyrir-
tækjum auk þess sem hann hefur verið
tengiliður við Island. Með hans aðstoð náðist
samkomulag við Landspítala háskólasjúkrahús
í sumar um kaup á netsímkerfi sem byggir á
Vollj „Voice over IP‘-tækni. A þeim
tíma var þessi samningur sá
stærsti sem Cisco hafði náð
innan heilbrigðisgeirans í
öllum heiminum. Upp-
setning kerfisins er hafin
og stefnt er að því að
taka það í notkun 1.
desember. Þessi samn-
ingur varð m.a. tíl þess
að Steinþór var kjörinn
tæknimaður ársins í
Noregi og tæknimaður
ársins í Norður-Evrópu
á þessu ári hjá fyrir-
tækinu.
Cisco er stærsta
fyrirtæki í heiminum
í símkerfum sem
byggja á netsíma-
tækninni eða svokall-
aðri „Voice over IP“-
tækni. Fyrirtækið
hélt ráðstefnu hér á
landi um miðjan októ-
ber þar sem þessi
tækni var kynnt auk þess sem Steinþór hefur komið
nokkrum sinnum til landsins til að tjalla um þessi mál. Þessi
tækni gerir fyrirtækjum kleift að nýta sér kosti þess að tvinna
saman gagna- og talheiminn og ná með því fram bæði vinnu-
hagræðingu og sparnaði við rekstur beggja kerfanna.
Úryggið er viðkvaemt Eitt af þeim atriðum sem mikið er rætt
um þessa dagana er öryggi þráðlausra netkerfa. Eins og stað-
an er í dag fara allar upplýsingar opið á milli og segir Stein-
þór mögulegt að komast að innihaldinu þó að sending-
arnar hafi verið læstar. Ef upplýsingarnar eru
brenglaðar á hefðbundinn hátt getur það tekið
aðeins eina og hálfa klukkustund að bijóta upp
öryggislyklana og því þarf að fmna aðrar
öryggisleiðir. Steinþór telur eina af mögulegum
lausnum geta legið í búnaði sem notaður er til
að þekkja notendur þegar þeir tengjast þráðlaus-
um netkerfum. Þessi búnaður mun sjálfkrafa
breyta öryggislyklunum reglulega þannig að ekki
sé hægt að brjóta upp fyklana. Önnur leið er að nota
svokallað VPN, „Virtual Private Network“-tækni,
sem brenglar sendinguna milli sendanda og
móttakanda. Móttakarinn þarf svo að
hafa búnað til að taka við þessum
brengluðu upplýsingum,
afbrengla þær og með-
höndla. Þessar tvær
lausnir eru helst
taldar koma til greina
til að ráða bót á þess-
um öryggisvanda.
Vald og svigrúm
Cisco Systems
vinnur eftir
mjög óvenju-
legri hug-
myndafræði á
alþjóðlegum
mælikvarða.
Yfirbyggingin
er í lágmarki
og ekki er
hægt að segja
að starfsmanna-
fjöldinn sé að
sliga fyrirtækið.
Meðan sambæri-
leg fyrirtæki eru
Steinþór Bjarnason, tceknisérfræðingur hjá Cisco Systems íNoregi. Hann hefur sérhæft
sig í netsímum og öryggismálum netkerfa og sinnt vel sambandinu við Island. Hann var
kjörinn tæknimaður ársins í Noregi og tœknimaður ársins í Norður-Evrópu hjá Cisco á
síðasta starfsári. Myndir: Geir Ólajsson
64