Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2001, Side 99

Frjáls verslun - 01.09.2001, Side 99
Valdts Haraldsdóttir markaðsstjóri Lyjju: „ Við höfum frá upþhafi boð- ið viðskiþtavinum okkar uþþ á ókeyþis blóðþrýstingsmœlingar. “ Valgeir Sigurðsson, sjúkraþjálfari hjá Gáska. Til að tryggja heilnœmt vinnuumhverfi á vinnustað gerir Gáski-vinnuvernd úttekt á vinnuað- stöðu starfsmanna, skráir niðurstöður oggerir tillögur að úrbótum. Beinþéttnimælingar Störfhjúkrunafrœðinga í verslunum Lyfju bjóða upp á fjölbreytta pjónustu og einnig aukið aðgengi jyrir viðskiptavini að heilbrigðis- pjónustu og forvarnarstarfi. Við veitum faglega ráðgjöf hvað snertir vörur og þjónustu og leggjum okkur í líma við að útvega flestar þær hjúkrunartengdar vörur sem óskað er eftir,“ segir Valdís Haraldsdóttir markaðsstjóri Lyfju. „Frá upphafi höfum við boðið viðskiptavinum upp á ókeypis blóðþrýstingsmælingar og frá 9. nóvember á síðasta ári gat almenningur fengið mælingu á beinþéttni í Lyiju Laugavegi, Smáralind og Smáratorgi og höfum við nú mælt beinþéttni í um 1800 einstaklingum. Notað er hæltæki sem hefur hlotið samþykki hjá FDA, Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu. Hluti af því gjaldi sem tekið er fyrir hverja beinþéttnimælingu sem er kr. 950, rennur til Beinverndar í gerð bæklinga til for- varnastarfa. Þessi þjónusta Lyfju er veitt í samvinnu við Bein- vernd. Frá og með desember á sl. ári buðum við upp á enn frekari þjónustu við mælingar og ráðgjöf hvað viðkemur heilsu. Þá tókum við upp mælingar á blóðfitu og blóðsykri. Við þessar mælingar eru notuð nákvæm tæki frá Cholestech í Bandaríkjunum. í einni og sömu mælingu er athugað kól- esteról (vont og gott), þríglýseríð og einnig blóðsykur. Tæki þessu hafa verið undir ströngu gæðaeftirliti og er hér um að ræða nákvæmar og áreiðanlegar mælingar. Allir sem koma í þessar mælingar fá útskrift af niðurstöðum og ráðgjöf og leiðbeiningar. Með því að auka aðgengi almenn- ings að mælingum af þessu tagi fáum við fleiri til vitundar um heilsufar sitt og til að leita lækninga ef með þarf.“S!i I einni og sömu mælingu er athugað kólesteról (vont og gott), þríglýseríð og einnig blóðsykur. Gáski gætir að vinnustellingunni Erstóllinn í lagi? Tölvuskjárinn í réttri hæð? Líkamsbeitingin rétt? Starf Gáska miðar að því að koma í veg fyrir hvers kyns álagseinkenni m.a. vegna rangrar líkamsbeitingar við vinnu en einnig að aðstoða starfsmenn við að takast á við þau vandamál sem þegar eru komin fram. Starfsemin byggist á þremur meginþáttum: greiningu, fræðslu og ráð- gjöf,“ segir Valgeir Sigurðsson, sjúkraþjálfari hjá Gáska. ÞÖrl fyrir góðan aðbúnað „Margir þættir kalla á aukna eftir- spurn eftir þjónustu á sviði vinnuverndar og heilsueflingar hér á landi. Meðal nýrra reglugerða Evrópusambandsins er að atvinurekandi skuli láta fara fram sérstakt mat á starfsum- hverfi þungaðra kvenna. Atvinnurekendur hafa einnig áttað sig á ávinningi vinnuverndarstarfs og starfsfólk í nútíma um- hverfi gerir kröfu um góðan aðbúnað á vinnustað. Þessu til viðbótar má nefna að með tilkomu aukinnar tölvutækni hafa ijölmargar starfsgreinar fengið hlutverk fyrir framan tölvu- skjái. Því er stór hópur fólks sem er að fást við mjög líkam- lega einhæf störf og sá hópur fer stækkandi.“ Hlutverk ráðgjafa Gáska-vinnuverndar Til að tryggja heil- næmt vinnuumhverfi á vinnustað hefur Gáski-vinnuvernd gert úttekt á vinnuaðstöðu, skráð niðurstöður og gert tillög- ur að úrbótum og kynnt yfirmönnum deilda sem og yfir- mönnum fyrirtækis. Niðurstöðurnar eru mikilvægar bæði þegar gera á úrbætur og eins til að meta árangur þegar end- urmat fer fram. Yinnuumhverfi hvers starfsmanns er kort- lagt á kerfisbundinn hátt en ekki síður mikilvægur þáttur er fræðsla til starfsmanna og leiðbeiningar um það á hvaða hátt hann geti fengið það besta út úr sínu vinnuumhverfi. „Avinn- ingur atvinnurekenda er fólginn í auknum afköstum starfs- manna, fækkun veikindadaga og minni fjarveru vegna með- ferðar í vinnutíma og aukinni starfsánægju starfsfólks.“ H3 99
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.