Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 63
OLÍS ■ ÞEIR LÉTU DÆLUNfl GflNGfl
MNMÍlÍIÍ
Olíustöðin Klöpp var eitt helsta kennileiti Reykjavíkur um áratugaskeið. Myndin er
frá jjórða áratugnum.
mundur Ó. Guðmundsson, sagði um feril Héðins: „Dagsbrún varð
stéttarlegt stórveldi í landinu, félagatalan margfaldaðist, kjörin og aðbúð
öll varð stórbætt og undirlægjuhátturinn hvarf.“
Héðinn stofnaði Tóbaksverzlun Islands árið 1925 og olíufélag tveimur
árum síðar. Þrátt fyrir það flutti hann ár eftir ár frumvarp á þingi um að
koma á ríkiseinokun. Þá sagði Ólafur Thors, leiðtogi sjálfstæðismanna,
þegar hann mælti gegn tillögu Héðins: „Það eru ekki of margir dugandi
kapítalistar á Islandi. Og ég ber það traust til verzlunarhæfileika Héðins, að
hagsmunum neytenda sé ekki síður borgið í höndum hans en einhvers
tóbakssöluforstjóra."
Yfir Kaldadal Bílaöld var runnin í garð. Vegir voru troðningar en alda-
mótakynslóðin var full eldmóðs og lagði á brattann. Aðalsteinn Guðmunds-
son lýsir ferð sinni með Þórði Guðbrandssyni með bensín á tunnum ^Ær
Kaldadal að Húsafelli í Borgarfirði sumarið 1929.
„Við lögðum af stað frá Klöppinni snemma á þriðjudagsmorgni í björtu
og góðu veðri áleiðis til Þingvalla. Við fórum eins og leið liggur norðaustur
Þingvallahraun í áttina að Armannsfelli, fram hjá bæjunum Skógarkoti og
Hrauntúni, sem þá voru enn í byggð úti í hrauninu, héldum austur með
Armannsfelli og komum að Jórukleif, snarbrattri brekku upp á Kaldadals-
veg. Ekki hafði verið ruddur vegur upp brekkuna. Þegar ég hugsa til
ferðarinnar upp þessa snarbröttu brekku, sem ekkert var nema mold og
urð, þá skil ég ekki hvernig í ósköpunum Þórður fór að koma bílnum alla
leið upp og ég á eftír með stóra steina í fanginu tilbúinn að skella þeim fyrir
hjólin, því þremsurnar héldu ekki vegna brattans ef bíllinn stöðvaðist, sem
oft gerðist. Eg held að ferðin hafi verið miklu hættulegri en við gerðum
okkur grein fyrir.
En upp komumst við og eftír þetta gekk ferðin vel þó hún væri sein-
farin. Þegar Skúlaskeiði sleppir er stutt eftír að Húsafelli. Skömmu áður en
komið er að Húsafelli sést yfir til Hvitársíðu og bæirnir blasa við, Kal-
manstunga efst. Þá var klukkan að verða tíu að kvöldi og við búnir að vera
15 klukkustundir á leiðinni. Síðar fengum við að vita að við vorum fyrstir
tíl þess að aka Kaldadal á fullfermdum vörubíl. Okkur Þórði þótti gott að
vita af því.“
Héðinn Valdimarsson stjórnaði Olíuverzlun Islands af röggsemi en
hann var líka atkvæðamikill í stjórnmálum. I sögu félagsins er íjallað um
pólitísk afskipti Héðins og deilurnar í Alþýðuflokknum sem enduðu með
því að Héðinn var rekinn úr Alþýðuflokknum árið 1938.
Eftír síðari heimsstyijöldina samdi Héðinn við BP í Lundúnum um að
reisa olíustöð í Laugarnesi. Það var stórvirki, liklega stærsta einkafram-
kvæmd á Islandi fram tíl þess tíma. Þetta var á tímum Fjárhagsráðs, póli-
tiskra hafta. Pólitískir óvildarmenn Héðins í Alþýðuflokknum komu í veg
fyrir að BP fengi leyfi tíl þess að hefja framkvæmdir í Laugarnesi.
Héðinn Valdimarsson lést 12. september 1948, aðeins 56 ára gamall. III
Og það þurfti að hreinsa olíugeymana. Það var óþrifastarf
og fráleitt hœttulaust. Þorkell Gíslason tilbúinn að hreinsa
olíugeymi, maðurinn við hlið hans er ókunnur en líklega
hefur hann verið oþinber eftirlitsmaður.
Verkamenn jýlgjast með olíu sem streymir í tankana á Klöþp
meðan landað var úr British Tomrny í júní 1928. Verka-
menn afferma Ford-vörubíl BP og hlaða tómum tunnunum
í stafia.
Jóhannes Skúlason og Þórður Guðbrandsson við GMC-
olíubíla á fjórða áratugnum.
63