Morgunn - 01.12.1963, Síða 20
94
MORGUNN
aftur,. en koma þá venjulega sem fræðarar eða menn-
ingarfrömuðir. Aðrir hverfa til enn hærri sviða, þar sem
þeir hljóta síhækkandi og víðtækari skynjunarhæfni, unz
þeir öðlast eins konar „cosmiska" vitund og verða eitt
með guði.
Mörg eru þó þrepin í þeim stiga og er ógurleg sú and-
ans leið upp í Sigurhæðir. Vera má, að sumum kunni að
virðast það ekki vera árennilegt til dæmis að taka sér
bólstað á Sólunni,. en Myers heldur því fram, að leiðir
sumra kunni að liggja þangað, þar sem þeir hljóti bú-
stað innan um ýmsa logadrottna, en vitanlega verður
líkami þeirra, sem þar búa, með allt öðrum hætti en
hinn jarðneski líkami. Aðrir komast í félagsskap viðlíf-
verur annarra sólkerfa, sem komnar eru lengra áleiðis
til þroskans. En þá eru menn komnir á það vitundarstig,
sem oss er nú óskiljanlegt og óumræðilegt.
Langt mál mætti rita um lýsingar Frederics Myers á
öðru lífi, en til þess gefst nú ekki tími að sinni.
Ég vil nú ljúka þessum orðum með setningu, sem
Miss Geraldine Cummins ritaði ósjálfrátt eftir ungum
liðsforingja, sem féll í heimsstyrjöldinni fyrri: Hann
sagði: „Mikið ljómandi höfum við það gott héma meg-
in. Hver mundi ekki vilja vera dauður, ef hann hefði
hugmynd um, hvað við höfum það skemmtilegt.
Þið lifið bara eins og flugur á haug þama niðri.“
Benjamín Kristjánsson.