Morgunn


Morgunn - 01.12.1977, Page 38

Morgunn - 01.12.1977, Page 38
116 MORGUNN augum, þótt ekki tækist þeim að sýna fram á það hvernig Uri Geller færi að því að beita brögðum undir Argusaraugum ým- issa sérfræðinga, sem vitanlega töldu heiður sinn i veði ef þeir létu blekkjast. Æstastir allra þessara gagnrýnenda voru þeir, sem hafa atvinnu af sjónhverfingum. En þeir töldu að Geller væri ekkert annað en einn af þeim, þ.e.a.s. venjulegur töfrabragðameistari. Enginn bauðst þó til að leika þetta eftir honum í sjónvarpi við sömu skilyrði og hann varð að hlíta. Þó spunnust um þetta miklar deilur og umræður í blöðunum, þannig að tvær grimur tóku að rerma á surna sjónvarpsáhorf- endur. Eins og flestir aðrir fylgdist Matthew Manning spenntur með þessum sýningum og deilunum um þær í blöðunum. Hann segir svo frá þessu: „Foreldrar mínir horfðu á þennan þátt með mér. Og þeg- ar honum var lokið, þá var það móðir mín sem bað mig að reyna hvort ég gæti beygt málmhluti. Eg sagði henni að mér myndi ekki takast það, en tók samt upp ryðfría stálskeið til þess að gera tilraun á, og var það frekar til þess að gera henni til geðs. Ég strauk skeiðina mjúklega og einbeitti huganum að því að hún bognaði. Eftir tíu mínútna tilraun var skeiðin enn í sinni upphaflegu mynd og var bersýnilegt að særingar minar höfðu ekki áhrif á hana. Þegar aðrar tiu mínútur voru liðnar kom faðir minn inn í stofuna og ég sýndi honum skeiðina og sagði honum að ekkert hefði gerzt. Innkoma hans í stofuna truflaði einbeitingu mína, sem beindist frá skeiðinni, þegar ég fór að tala við hann. En ein- mitt á því andartaki fann ég að eitthvað hafði komið fyrir handfang skeiðarinnar. Það virtist ekki eins beint og það hafði verið. Við nánari athugun kom i ljós að ekki var um að villast, handfangið hafði bognað á einum stað. Og það var elcki nóg með það, nú hélt það áfram að bogna hratt þangað til það var orðið í laginu eins og hárnál.“ Siðan lýsir Matthew því hve illa honum gekk að trúa því að hann gæti gert þetta. En áframhaldandi tilraunir tóku af

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.