Morgunn


Morgunn - 01.12.1977, Qupperneq 63

Morgunn - 01.12.1977, Qupperneq 63
DULSKYNJANIR 141 aftra sér frá því að rannsaka fyrirbæri, jafnvel þótt þau virð- ist brjóta í bág við lögmál viðurkenndrar eðlisfræði. Þegar Shafica Karagulla lofaði vinkonu sinni að lesa bókina um Edgar Cayce fordómalaust, og henni varð ljóst hve örlaga- rík áhrif sá lestur átti eftir að hafa á lífsstefnu hennar, þá segir hún á einum stað: „Oft hefur það síðan hvarflað að mér, hvort ekki hefði verið heppilegra fyrir mig, ef ég hefði átt dálítið meira af hleypidómum þetta ágústkvöld.“ Já, því sannarlega átti hin nýja stefna hennar eftir að valda henni miklum vandræðum og fjárhagsáhyggjum. En hún sagði: „Ég hef alltaf verið haldin þeirri áráttu, að láta fjár- hagslega velgengni og embættisframa lönd og leið, ef ég hef séð hilla undir tækifæri til að uppgötva nýjar leiðir.“ Og hún fórnaði framavonum sínum og orðstír í þágu rannsókna á fólki með furðulega hæfileika. En hún varð sjálf að kosta þessar rannsóknir, því henni varð ljóst, að flestir styrktarsjóðir myndu veigra sér við að leggja fram fé í svona vafasama fyrirætlun, sökum þess hve lítið var vitað um sjálft viðfangs- efnið og því erfitt að meta gildi þess- En sumt fólk verður ekki stöðvað. Og án þess yrði áreiðanlega færra um framfarir. Þegar dr. Shafica Karagulla hafði sannfærst um hæfileika Edgars Cayces hóf hún persónulega leit sína að öðru sálrænu fólki, sem reyndist fáanlegt til þess að leyfa henni að rann- saga liæfileika sína og hefja með henni samstarf, sem eftir atvikum iðulega þyrfti að standa í langan tima. Og um þessa leit, árangur hennar og rannsóknir fjallar svo bók hennar Breakthrough to Creatiuety, sem nú er komin út á íslenzku í þýðingu Esterar B. Vagnsdóttur undir nafninu Nýjar víddir i mannlegri skynjun. Og hún komst að þeirri eftirtektarverðu niðurstöðu, að ýmsir sem gæddir voru þessum sálrænu hæfileikum höfðu árum saman beitt þeim sér til fulltingis við störf sin með góðum árangri. Lýsti það sér oft í því að viðkomandi „fann á sér“ hitt og þetta t. d. hvað var að gerast annars staðar eða hvað mundi gerast á næstunni o.s. frv. Er einkar heillandi að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.