Morgunn - 01.12.1984, Page 16
90
MORGUNN
sé jafn raunveruleg og það sem menn sjá og heyra vakandi.
Sálin fer sínar leiðir og kemst að því, sem ekki verður
skynjað í vökuástandi líkamans.
Shanianisminn
Löngum hefur þótt mikils um vert að kunna að stjórna
ferðum sálarinnar, ná valdi á henni og nota eiginleika
hennar til að ná valdi á umhverfi sínu. Meðal flestra þjóða
eru það töfraprestar, sem kunna að stjórna sálinni. Sham-
anisminn, sem útbreidur er um allt norðurhvel jarðar, er
þekkt dæmi um hvernig menn fara að því að losna úr lík-
amanum og fara um láð og lög eins og hugur manns og
allt til dauðraheima, eða á fund þeirra máttarvalda, sem
öllu ráða um líf manna og örlög. Áður en lengra er haldið
langar mig til að rekja nokkur dæmi um shamanisma eins
og honum er lýst í ritum. Fyrst ætla ég að rifja upp al-
þekkta frásögn Vatnsdælasögu um þetta efni.
I tíunda kafla Vatnsdælasögu segir frá því, að efnt var
til seiðs og leituðu menn frétta um forlög sín. Þar var
Finna ein, eða Sami, fjöikunnug og spáði hún „hverjum
eftir því sem gekk, en þat var nökkut misjafnt hversu
hverjum líkaði.“ Finnan spáði Ingimundi að hann mundi
byggja Island. Hann tók því fjarri, en Finnan sagði:
„Þetta mun fram koma, sem ek segi, ok þat til marks, at
hlutur er horfinn ór pússi þínu, sá er Haraldur konungur
gaf þér í Hafursfirði, ok er hann nú kominn í holt þat,
er þú munt byggja, ok er á hlutunum markaðr Freyr af
silfri; ok þá er þú reisir bæ þinn mun saga mín sannast."
Ingimundur reiddist þessu, og kvað Finnuna illu heilli
hafa komið. Margt er fróðlegt í þessari sögu. Fyrst er þess
að geta, að hér er sagt fyrir um ókomna atburði. Ekki er
það tengt sálnatrúnni, en hins vegar er sumum sálum fært
að ferðast um tímann ekki síður en rúmið. Þá er harla
fróðlegt að þegar búið er að segja eitthvað, tjá það, þá