Morgunn - 01.12.1984, Side 25
SÁLNAHUGMYNDIR . . .
99
arlaus orð eða setningar og óreglulegur trommusláttur
eru algengustu aðferðirnar við að falla í dá. Þegar sham-
aninn er kominn í dá kemur verndarandi hans til hans og
hjálpar honum á ferðum sálarinnar. Til gamans get ég
hér um frásögn um för töframanns á fund Sednu, móður
sjókindanna meðal Eskimóa og er svo hægt að rekja sig
frá þeirri sögu að kjarna sálnahugmyndanna meðal veiði-
bjófa. Paul Egede, sonur Hans Egede, sem hóf að leita
norrænna manna á Grænlandi árið 1721, og kristnaði
fyrstur Grænlendingana ólst upp í Godthab og lærði græn-
lensku til hlítar. Hann var nákunnugur trúarbrögðum
Grænlendinga og hefur skrifað margt og merkilegt um
þjóðhætti og viðhorf þeirra. Hann segir á einum stað frá
angakokk, töframanni, sem lýsti fyrir honum hvað gerðist
þegar hann færi á fund móður sjókindarinnar, Sednu, og
hvaða tilgang sú för hefði. Nú er það svo, að Sedna ræður
öilum veiðidýrum. Mislíki henni hegðun mannanna, til
dæmis ef veiðidýrum er sýnd óvirðing eða réttum aðferð-
um við veiðarnar ekki fylgt, þá lokar Sedna dýrin inni og
hungrið vofir yfir. Þá fer töframaðurinn á fund hennar
eins og segir hér á eftir. Paul Egede segir svo frá:
Aninia Tornnarsuk
„Angakokk úr öðru héraði sagði mér eftirfarandi:
Lengst niðri í jörðinni býr stór og vond kerling, sem
kölluð er amma Tornarsuk. Hún býr i húsi, sem er svo
stórt að ekki verður ör af boga skotið yfir það. Þessi
kerling ræður yfir öllum skepnum í hafinu. Þau eru henn-
ar heimafólk: hvaiir, einhyrningar, selir, fiskar. Mikill
fjöldi sjófugla syndii' í lýsisskálinni undir lampanum. Við
dyrnar í húsi hennar eru selavöður, sem standa upp á end-
ann og glefsa í þá, sem inn ætla að fara. Innst kemst eng-
inn nema angakokkinn, sem hefur verndaranda sinn með
sér. Á leiðinni verða þeir fyrst að fara um þar sem eru