Morgunn - 01.12.1984, Side 46
120
MORGUNN
hugræna sviðsins. Það er þar sem sálin „heldur til“. Hann
er nefndur orsakalíkami vegna þess að orsakir safnast
þar saman og munu þær fyrr eða síðar verða settar fram
sem afleiðingar og aðstæður í hinum ytri sýnilega heimi.
Ekki skyldi hugsa sér þessa „samansöfnun“ í rúmi, rétt-
ara væri að hugsa sér hana sem „möguleika til tíðnissvör-
unar“, eða sem orkukjarna er geta verið til í óendanlegu
magni án þess að hafa áhrif hvor á annan á nokkurn hátt.
Orsakalíkaminn er hinn varanlegi geymslustaður þeirra
fjársjóða er safnast hafa saman í gegnum reynslu hugsun-
ar, tilfinninga og athafna í lægri líkömunum þremur.
Hann er himinn sá er Matteus talar um í guðspjalli sínu,
þar sem fjársjóðir spillast ekki. (Matteus 6:19—21).
Lýsing á hinum þétta efnislíkama samansettum úr föst-
um efnum, vökva og lofttegundum er ekki nauðsynleg hér.
Einn mikilvægur þáttur er engu að síður ekki nefndur
í kennslubókum. Er hann kallaður „eterski tvífarinn" og
hefur mikilvægu hlutverki að gegna, þar sem hann er
mótið sem hinn þétti efnislíkami er byggður eftir. Hver
einasta fruma efnislíkamans á sinn eterska tvífara. Þar
eð eterski tvífarinn getur ekki haldið meðvitund fjarri
hinuni efnisþétta tvifara sínum telst hann ekki sjálfstætt
tjáningartæki mannlegra tilfinninga, heldur gegnir hann
hlutverki tengiliðs á milli efnislíkamans og hinna fínni
þátta mannsins. Hann dregur í sig orku frá sólinni og
sendir hana sem lífsorku um taugakei’fi mannsins. Hann
er stundum nefndur heilsublik, vegna þess að litir hans og
tíðni gefa til kynna líkamlegan þrótt og heilsu einstaklings-
ins.
Geðlíkaminn, sem nær aðeins út fyrir efnislega formið
og eterska tvífarann, er tjáningamiðill tilfinninga og lang-
ana, allt frá dýrslegri ástríðu til hinna hærri og göfgandi
tilfinninga sem eru að vissu leyti endurspeglun hærri þátta
mannsins. Þegar efnislíkaminn sefur heldur vitundin
áfram að starfa í geðlíkamanum. Meirihluti efnis geð-
líkamans er mótað innan þess ramma sem markast af