Morgunn - 01.12.1984, Blaðsíða 72
146
MORGUNN
Sá framliðni maður, sem sagt er að láti Miss Cummins
skrifa það, sem hér verður gert að umtalsefni, hefur oft
verið nefndur í þeim ritum, sem komið hafa út hér á landi
um sálræn efni. Hann hét Fredric W. H. Myers og andað-
ist 1901. Hann var einn af ötulustu og skarpvitrustu sálar-
rannsóknarmönnum, sem uppi hafa verið og einn af stofn-
endum breska sálarrannsóknarfélagsins, rithöfundur og
skáld og kennari við háskólann í Cambridge í grískum og
rómverskum fræðum. Aðalrit hans er „Persónuleiki
mannsins og framhaldslíf hans eftir dauða líkamans“, sem
kom út eftir andlát höfundarins. Jakob Jóh. Smári hefur
lagt út á íslenzku eina af bókum hans, ljóð um Pál postula.
Það er að sjálfsögðu örðugt að sanna, svo að ekki verði
véfengt, að þessi skrif séu frá Myers. En mjög miklar líkur
eru færðar að því í bókinni. Ég get ekki farið út í þær
röksemdir hér það yrði of langt mál, og í því efni verð ég
að láta sitja við það að vísa mönnum á bókina sjálfa. En
hins vil ég láta getið, að jafn varfærnir gagnrýnismenn
eins og Sir Oliver Lodge, Mr. Stanley de Brath og Mr.
Gow ritstjóri tímaritsins Light, taka gilda þá staðhæfing,
að skrifin séu frá Myers runnin, þó að við því megi búast,
eins og margtekið er fram í bókinni, að ekki sé allt ná-
kvæmlega eins og Myers mundi hafa viljað orða það. —
Um efni bókarinnar ritar Sir Oliver Lodge í formála
fyrir henni m. a. þessi merkilegu og eftirtektai’verðu orð:
„Mér finnst ég hafa rétt til að mæla með þessari bók sem
alvai’legri tilraun til þess að veita fræðslu um hið kom-
anda líf og þau stig, sem alvai’lega hugsandi menn mega
búast við að fara um. Það eru til lægri stig fyrir menn,
sem minni þroska hafa fengið eða lakar eru innrættir; en
á þau stig er ekki minnzt hér. Það hlýtur að vei’a mjög
örðugt fyrir fi’amliðinn mann að veita, í stuttu máli, skilj-
anlega fræðslu um annað tilvei’uástand, veita hana mönn-
um, sem enga í’eynslu hafa af því ástandi, enda kann eitt-
hvað að hafa verið misskilningi háð. En ég trúi því, að
þetta sé áreiðanleg viðleitni við að gefa mönnum hug-