Morgunn - 01.12.1984, Blaðsíða 89
NÝJUSTU K.ENNINGAR . . .
163
fullnægja þessari hlið á eðlifari hans, sem ofvöxtur hefur
hlaupið í. Aðrir hans líkar dragast að honum. Og um
tíma lifa þessar verar í kynferðisparadís. En hafið það
hugfast, að þetta skapast af hinu hugræna ástandi mann-
anna, af endurminningum þeirra og ímyndunarafli. Það
rekur að því, að mennirnir fara að fá óbeit á þessum
nautnum, sem þeim er svo auðvelt að veita sér allt of
mikið af, og þeir komast að raun um, að það er afar
torvelt að losna við þá, sem taka þátt í þessum nautnum
með þeim.
Það er auðvitað ómögulegt að ákveða neinar ófrávíkjan-
legar reglur í þessum efnum. Hver einstaklingur hefur
sína sérstöku reynslu í Hades og Blekkingarlandinu. Sum-
ir hafa ekki máttinn til þess að fullnægja iöngunum sínum.
I raun og veru eru þeir færir um það, en eðlisfar þeirra
leyfir þeim það ekki. Til dæmis að taka, þá kann svo að
fara fyrir kaldlyndum, eigingjörnum manni í Blekkingar-
landinu, að hann dvelur í myrkri, af því að vera hans hefur
ekki mátt til að beita sér út á við. Eftir áfall dauðans er
hann knúður til að leita inn á við meira en nokkru sinni
áður. Hann heldur, að hann hafi tapað öllu. Hann miss-
ir samband við allt nema þá meðvitund, að hann sé sjálfur
hugsandi vera. Um tíma er þetta myrkur martröð, og hún
heldur áfram, meðan hann lifir í þeirri óheilbrigðu hugs-
un, að hann hafi tapað öllu, lifir í löngunum sínum, sem
eingöngu stefna að því að fullnægja sjálfum sér, án nokk-
urrar hliðsjónar á öðrum. Það getur farið svo, að ein-
göngu verði myrkur utan um þann mann, sem er óvenju-
lega eigingjarn.
Nærri því sérhver sál lifir um tíma í blekkingarástand-
inu. Hjá miklum meirihluta mannanna ríkir sá skilningur,
Þegar þeir deyja, að efnið sé veruleiki, að þeirra sér-
staka reynsla af efninu sé eini veruleikinn. Þeir eru ekki
undir það búnir að breyta viðhorfinu á einu augabragði
°g gersamlega. Þeir þrá innilega umhverfi, sem þeir kann-
ast við, en sé samt fegurra en þeir hafa vanizt. Lífslöng-