Morgunn - 01.12.1984, Page 92
166
MORGUNN
fær gert sér í hugarlund, en að lokum leiðir það sálina
að landamærum hinnar yfii'-jarðnesku veraldar.
Sálin verður vör nýrra hluta og fær nákvæmari skynj-
anir, þegar hún ræður af að halda upp á við eftir stiga
meðvitundarinnar. Þess vegna fer hún inn á fjórða við
tilverunnar.
Á jörðunni eru það langanir líkamans, sem að miklu
leyti ráða yfir mannverunni, þó að innblástur komi frá
andanum inn í lífið og hann varpi við og við ljósi inn í
myrkur mannsheilans. Andinn eða hin dýpri lög hugar-
ins geta ekki verkað á vei’una nema með veikum mætti.
Á fjórða sviðinu getur andinn notið sín betur. Sálin verð-
ur vör við breytinguna með þeim hætti, að vitsmunamátt-
urinn eykst stórkostlega. Endurminningin um smáatriði
jarðneska lífsins týnist stundum, en sálinni tekst betur
að einbeita huganum. Sálin flytur samt með sér grund-
vallaratriði endurminninganna, eða öllu fremur heldur
sambandi við þær á fyrsta stiginu á fjórða sviðinu. Á
þessu stigi meðvitundarinnar lærir veran smátt og smátt
að draga að sér úr andanum máttinn til þess að ráða yfir
þeirri mynd, sem hún birtist í, og umhverfi sínu yfirleitt.
Auðvitað er reynsla einstaklinganna afar mismunandi.
Myers segist taka til dæmis sálarmann, sem haldi ákveðið
áfram upp á við, þar sem framfarimar verði ekki, eins
og þær verði hjá svo mörgum, í öldum, upp og niður, þó
að hver alda rísi upp ávallt ofurlítið hærra en sú næsta á
undan.
Þessi vera gerir sér nú fyrst af öllu grein fyrir því, að
hún er komin inn í veröld óteljandi lita, ljóss og hljóma.
Hún verður vör við það, að líkami hennar er allsendis
ólíkur jarðneskum líkama. Fyrri athafnir mannsins hafa
áhrif á það, hvemig þessi líkami lítur út, að svo miklu
leyti sem þær athafnir hafa þrýst sér inn í hina dýpri
vitund. Þetta litasamband kann að vera afkáralegt, und-
arlegt útlits, kann að vera svo yndislegt, að orð fá því