Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Side 71

Morgunn - 01.12.1996, Side 71
liru kraftaverk kraftaverk? kvæmt. Hjá Vegagerðinni var þetta einu sinni kallað „blöndun á staðnum,“ þú smám sarnan „vefur“ þig þangað sem auðveldast er að ná í það efni, sem þú hefur valið. Manneskjan myndi því stranda í vefnum vegna of mikilla andstæðna. Auk þess sem hugarfar- ið væri sjálfsagt óbreytt, svo fljótlega myndi sækja í sama farið. En eins og áður er nefnt, þá er að sjálfsögðu hægt að hjálpa slíkri manneskju til betri tíðar, standi vilji hennar til þess. Það hlýtur að þurfa að gera með and- legri leiðbeiningu, andlegri leiðsögn, svo opna megi augu hennar fyrir hinum raunverulegu gildum lífsins. Það getur falist í því að koma henni í kynni við fólk sem hefur jákvæðari lífsviðhorf og skapar í kærleika. Það gerist kannski í gegnum mann, sem þekkir mann, sem þekkir annan mann. Svona leiðbeining held ég einmitt að berist oft að handan. Hinar hjálp- andi hendur eru víða til, jafnvel án þess að þær viti sjálfar að þær séu notaðar sem slíkar. Þannig smábreytist tíðnin í grunnefni vefsins, og eftir því sem viðkomandi kynnist betur þeirri ham- ingu sem felst í vefnaði kærleikans, því ákafar mun hann vefa. Hvorl það skeður á einni viku, mánuði, ári, áratugum eða æviskeiðum, það hlýtur að vera að mestu undir manneskjunni sjálfri komið. Nú má segja að þetta séu kannski út af fyrir sig, engin ný sannindi. En eru það samt ekki ótrúlega margir, sem ekki virðast gera sér nokkra grein fyrir þeim? Jú, því miður, það eru þeir. En bjargræðið er í raun alltaf innan seilingar, íai manneskjan áhuga, frá innsta grunni, á að leita ljóssins og þeirra verðmæta sem gera hana raunverulega ríka. Og „bjargræðið,“ MORGUNN 69

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.