Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Page 76

Morgunn - 01.12.1996, Page 76
Hugheimar I hafa legið í dáleiðslu og þeir hafa sloppið undan valdi dávaldsins. En þeir eru samt færri, sem hafa haft nema einhverja óljósa endurminningu um óumræði- lega sælu, er þeir hafa raknað við, og hefur slík end- urminning borið, alloftast, meiri eða minni keim af trúarskoðunum þeirra. Þegar hinn framliðni maður, sem hefur lifað meira og meira innrænu lífi, síðan hann skildi við jarðneska líkamann, er kominn inn á þetta tilverustig, geta hvorki tregahugsanir eftirlifandi ástvina né tilraunir sambandstrúarmanna orðið til þess að draga hann aftur ofan á jarðríki. Hann hverfur því ekki aftur nið- ur á hið jarðneska tilverustig, fyrr en hinir andlegu kraftar, sem eiga rætur sínar að rekja til síðustu jarð- vistar, eru með öllu þrotnir. Er hann þá reiðubúinn til þess að íklæðast aftur jarðneskum líkama. Og þótt svo væri, sem ekki er, að hann gæti birst hér á jarð- ríki úr hugheimum og reynt að skýra frá því, hvernig þeir komu honum fyrir sjónir, þá mundi lýsing hans ekki gefa mönnum nokkra verulega hugmynd um þetta dýrðlega tilverustig. Því að eins og síðar mun sýnt verða fram á, eru það ekki nema þeir menn, er geta farið í lifanda lífi með fullri meðvitund inn á það, sem er fært að ferðast þar um og njóta allrar þeirrar dýrðar og fegurðar, sem það hefur til að bera. En frá öllu þessu verður skýrt nánar, er við reynum að lýsa íbúum hugheima, eins hins himneska tilveru- stigs. Fögur lýsing Lýsing sú, er hér fer á eftir, er tekin úr bréfi eins af 74 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.