Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Page 82

Morgunn - 01.12.1996, Page 82
Hugheimar um, eins og hér á jarðríki. Þar eru menn ekki gæddir hinum afar næmu skynjunum, sem þeir hafa í geð- heimum, er gera þeim fært að sjá og heyra, það sem gerist í geysimikilli fjarlægð. í stað þess komast þeir að raun um, er þeir eru komnir upp í hugheima, að þeir hafa öðlast alveg nýja skynjunargáfu, er líkist engri þeirri skynjun, sem við höfum áður þekkt, en sýnist þó fela þær allar í sér og er meira að segja full- komnari en þær allar til samans. Með þessari alskynj- un eða heildarskynjun, gerir maðurinn ekki aðeins að sjá, heyra eða í'inna hverja þá veru eða hlut, sem hann verður var við, heldur öðlast hann þegar í stað rækilega þekkingu til dæmis á hverjum þeim hlut, sem hann skynjar. Hann skynjar hann bæði að utan og innan, þekkir þegar í stað orsakir hans og afleið- ingar, veit til hvers hann getur orðið og þekkir af- stöðu hans gagnvart öllu, að minnsta kosti í hug- heimum og báðum tilverustigunum fyrir neðan þá. Og þá gerir maður líka þá uppgötvun, að það er sama að hugsa um hlutina i hugheimum og koma þeim í framkvæmd. Þar þarf maður ekki að vera milli vonar og ótta um nokkurn hlut, aldrei að bíða og sjá, hverju fram vindur. Ef við hugsum okkur og þráum að vera komnir á einhvern sérstakan stað, þá erum við og komnir þangað á sama augnabliki. Og hver sá mað- ur, er hugsar um vini sína, hlýtur að sjá þá í sömu svipan frammi fyrir sér. Þar getur enginn misskilning- ur orðið né nokkur látið blekkjast af ytra útliti, því að hver hugsun manna og tilfinning er sýnileg, og sem opin bók í hugheimum. Og ef maður á því láni að fagna að eiga vin, sem hefur öðlast hinar æðri skynjunargáfur, getur maður 80 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.