Lindin - 01.01.1957, Page 92
86
L I N D I N
fjarðar hefir nú síðari árin bætt laun hans til rauna, án
þess að hann hafi sótt um launahækkun.
Ég veit, að hér er úr vöndu að ráða og ekki er að vænta
þess, að allir verði sammála um, hvað gera skal. En um
hitt hygg ég að allir verði á einu máli, að falli söngur og
organleikur niður í fleiri eða færri kirkjum landsins, enda
þótt í fámenni væri, mundi það verða kirkjulífi og allri
kirkjulegri starfsemi mikill skaði.
Söngurinn er svo sterkur þáttur í messunum og öðrum
kirkjulegum athöfnum, að þar má aldrei verða afturför,
heldur eilíf framför. Því að það er satt, sem skáldið sagði:
„Þar, sem söngur dvín, er dauðans ríki-------“.
Jónas Tómasson.
Prófasturinn í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi vísiteraði
Hólskirkju í Bolungarvík 1. sunnudag í jólaföstu 2. desem-
ber s.l. Var þá kirkjan tekin í notkun eftir gagngerða við-
gerð, sem annarsstaðar er getið um í ritinu.
Nýtt pípuorgel var vígt í Patreksfjarðarkirkju 3. marz
s.l., sem keypt var frá Þýzkalandi. Ríkti þar mikill áhugi
fyrir þeim kaupum. Er það söfnuðinum til mikils sóma og
gott fordæmi skapað með því.