Lindin - 01.01.1957, Page 107
L I N D I N
101
maður í bamastúku í 25 ár. Þetta sýnishom af félagsstarfi
Guðmundar, sýnir manninn vel. Hann vildi starfa fyrir æsk-
una og leiðbeina henni. Æskulýðsleiðtogi var hann af lífi
og sál og var þar einlægur, eins og í öllu, sem hann tók sér
fyrir hendur.
Aðalstarf Guðmundar hér á ísafirði var smíðakennsla við
Bamaskólann á ísafirði, en sem mörgum er kunnugt, var
hann listamaður í tréskurði og hafði á yngri ámm aflað sér
menntunar á því sviði. Hann lærir hjá Stefáni Eiríkssyni
myndskera í Reykjavík og lauk námi hjá honum 1916. Hann
sigldi til Norðurlandanna og dvaldi þar 1919—21 og kynnti
sér fomnorræna tréskurðarlist og rannsakaði í þeim til-
gangi fomminjar á söfnum og naut bóklegrar fræðslu í
þeirri grein. Jafnframt kynnti hann sér heimaiðju og list-
iðnað og kennslu í þeim greinum. Haim var því gagnmennt-
aður maður á því sviði.
Eftir hann liggja margir fagrir smíðisgripir, sem bera
höfundi sínum gott vitni og vitna um óvenjulegan hagleik
hans.
Guðmundur frá Mosdal var óvenjulega kirkjusinnaður
maður, enda trúmaður mikill. Hann stóð í stöðugu bæna-
sambandi við guð sinn og var einlægur sonur kirkju sinnar,
enda vann hann henni mikið. Hann var um langt skeið
meðhjálpari í Isafjarðarkirkju. Hann var einnig lengi for-
maður fjársöfunamefndar við kirkjuna, sem hafði það að
markmiði að safna í byggingarsjóð hennar. Vann hann þar
óeigingjamt starf og mikið árlega. Hann sat einnig um
skeið í sóknamefnd Isafjarðarsóknar.
S.l. vetur kenndi hann sér þess meins, sem leiddi hann
til dauða 4. júlí s.l. Gekk hann undir uppskurð á Akranesi
7*