Morgunblaðið - 21.12.2008, Side 61
Auðlesið efni 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Sá siður að borða skötu á
Þorláks-messu er ættaður af
Vestur-landi en hefur á síðari
árum breiðst út um allt land.
Magnús Ingi Magnús-son,
veitinga-maður á Sjávar--
barnum við Granda-garð,
ætlar að bjóða upp á skötu
fram að jólum, sem hann
hefur verkað sjálfur. Skatan
hefur verið látin marinerast
frá því í septem-ber og ætti
því að vera vel kæst.
Magnúsi finnst best að nota
hvít-kötu og hafa hana stóra
og mikla. Hann býður líka upp
á tinda-bikkju fyrir þá sem
vilja.
Svo verður hann auð-vitað
að vera með eitt-hvað
mildara fyrir þá sem ekki
borða skötu. Salt-fiskurinn er
vin-sæll og sama er að segja
um plokk-fiskinn og köldu
sjávar-réttina. Einnig verður
hann með djúp-steikt fisk-roð
og annað spenn-andi, þannig
að allir ættu að finna
eitt-hvað við sitt hæfi.
Skatan orðin vel kæst
Morgunblaðið/Golli
Ný-lega voru
kynntar
niður-stöður
úr könnun á
við-horfum
félags-manna
í aðildar--
samtök-um í
Sam-tökum atvinnu-lífsins til
þess hvort sam-tökin ættu að
beita sér fyrir aðild Íslands að
ESB og upp-töku evru. Í
vikunni var til-kynnt að
sam-tökin myndu ekki gera
það. „SA verða áfram virkur
þátt-takandi í Evrópu--
umræð-unni og munu gæta
hags-muna allra
félags-manna á grund-velli
þess að skoðanir eru skiptar
um hvort sækja eigi um aðild
að ESB eða ekki,“ segir í
til-kynningu.
Á stjórnar-fundi síðasta
þriðjudag var haldið áfram að
hvetja til vaxta-lækkunar,
meðal annars vegna
lækkandi vaxta í öðrum
löndum. Þór segir fundinn
hafa verið góðan, þrátt fyrir
ágreining aðildar-sam-taka í
mál-efnum ESB. Hann hafi
rætt við for-stöðu-menn
margra fyrir-tækja
undan-farið. Flestir vilji að
um-ræðan um kosti og galla
aðildar haldi áfram.
ESB-aðild og
upptaka evru
Þór Sigfússon
Ólafur
Stefáns-son
skrifar á
næstunni undir
tveggja ára
samning við
þýska 1.
deildar liðið
Rhein Neckar Löwen. Ekkert
verður af því að hann gangi til
liðs við danska 2. deildar liðið
AG Hånd-bold. Jesper Nielsen,
stjórnar-for-maður smá-salans
Kasi-Group, hefur hætt við að
gera AG að stórveldi í hand-
knatt-leiks-heiminum. Hann
ætlar að flytja til Þýska-lands,
setjast í stjórn RNL og leggja
tals-verða peninga með sér.
Ólafur fylgir með í þeim
við-skiptum.
„Mér líst að sjálf-sögðu
ljómandi vel á þá hug-mynd að
fá Ólaf til okkar. Eigin-lega er
þetta of gott til þess að vera
satt. Óli er eins og allir vita
frá-bær leik-maður sem myndi
styrkja okkar lið mikið,“ sagði
Guðjón Valur Sigurðsson
hand-knatt-leiks-maður þegar
hann var inntur eftir við-
brögðum við þeim fregnum að
Ólafur Stefáns-son gangi til
liðs við þýska liðið fyrir tíma-
bilið 2009-2010.
Ólafur til
Þýskalands
Ólafur
Stefánsson
Ákæra á hendur Jóni Ásgeiri
Jóhannes-syni, Kristínu
Jóhannes-dóttur systur hans,
Tryggva Jónssyni, Baugi
Group og fjár-festingar--
félaginu Gaumi fyrir meiri
háttar brot gegn skatta--
lögum á árunum 1998 til
2002 var birt síðasta
fimmtu-dag. Jón Ásgeir og
Kristín eru ásamt foreldrum
sínum eigendur Gaums sem
er aðal-eigandi Baugs.
Ákæran er í fimm köflum sem
sumir hverjir skiptast niður í
nokkra liði. Mun fleiri höfðu
haft stöðu sak-bornings við
rann-sókn málsins. Meðal
þeirra eru Stefán Hilmars--
son, Jóhannes Jóns-son,
Ingi-björg Pálma-dóttir og
Óskar Magnús-son.
Málið verður þing-fest 20.
janúar.
Ný ákæra í
Baugsmáli
Ragnar Ísleifur Bragason var
einn þeirra sem hlutu
Ný-ræktar-styrk Bók-mennta--
sjóðs síðast-liðinn fimmtu--
dag. Styrknum er ætlað að
styðja við út-gáfu á nýjum
íslenskum skáld-verkum sem
hafa tak-markaða eða litla
tekju-von, en hafa ótvírætt
menningar-legt gildi. Ragnar
fékk styrkinn til að gefa út
ljóða-bók. Út-komnar bækur
sem hlutu styrk eru: Með
villi-dýrum, Refur og
Hálm-strá.
Hlaut Ný-ræktar-styrk Bók-mennta-sjóðs
Morgunblaðið/Ómar
Ragnar Ísleifur Bragason segist ætla að gefa út ljóðabók á afmæli sínu 21. febrúar.
Reynir Trausta-son, rit-stjóri
DV, hyggst sitja áfram í
rit-stjóra-stóli.
Í yfir-lýsingu sem Reynir
sendi frá sér síðast-liðinn
mið-viku-dag, segir hann að
upp-taka af einka-sam-tali
sínu og Jóns Bjarka
Magnús-sonar sem birt var í
Kast-ljósi hafi verið gerð án
sinnar vitundar.
For-sagan er sú að Jón
Bjarki Magnús-son,
fyrr-verandi blaða-maður á
DV, birti yfir-lýsingu um að
birting fréttar sem hann
skrifaði um Sigur-jón Þ.
Árna-son, fyrrum
banka-stjóra Lands-bankans,
hefði verið stöðvuð af
rit-stjóranum Reyni
Traustasyni hinn 6.
nóv-ember. Í greininni kom
fram að Sigurjón væri að
koma á fót ráð-gjafar--
fyrir-tæki í húsnæði Lands--
bankans og vonaðist eftir
verkefnum frá bankanum.
Sagði Jón Bjarki þar að
Reynir hefði gefið þá
skýringu að „stórir aðilar úti
í bæ“ hefðu stöðvað birtingu
fréttarinnar og haft í
hótunum við blaðið.
Reynir segir að tveggja
manna trúnaðar-samtal sé
ekki góð heimild. Í slíku
sam-tali tali menn gjarnan
opin-skátt og segi jafn-vel
meira en þeir meina eða
vilja sagt hafa.
Starfs-menn DV funduðu
um málið á þriðjudag, með
og án rit-stjóranna.
Valur Grettis-son blaða--
maður sagði upp störfum á
DV. Hann segir að upp sé
komið um-hverfi sem hann
hvorki geti né vilji starfa í.
Reynir áfram ritstjóri DV
Reynir
Traustason
Jón Bjarki
Magnússon
Netfang: auefni@mbl.is